Góđ útkoma hjá Glym
fimmtudagur, 22 júlí 2010

Gríðarlega góð útkoma var hjá Glym frá Innri - Skeljabrekku en alls voru 19 merar fengnar svo það er rúmt á honum þessa dagana þó svo að nokkrar hafi bæst við.

Við fórum með Birtu til Vilmundar og vonandi verður hann almennilegur við hana en það er ekki hægt að bæta við í hólfið hjá honum þar sem hann hefur sýnt einhver leiðinlegheit þegar það hefur verið gert. Við bætum í hægri/vinstri hjá þeim félögum sem hér eru og taka þeir öllum merum fagnandi.

Þá er sumarfríið hjá mér á enda og við tekur vinna á gjörgæslunni alla helgina og strax eftir helgi í fræðslustörfunum að skipuleggja veturinn. Einar verður áfram hér heima og erum við búin að fá mann til aðstoðar þar sem hann getur ekki gert það sem gera þarf. 

Björk, Stássa og Njála er enn ókastaðar og er þetta nú meiri stíflan í þeim. Veðrið er dásamlegt og fékk ég góða heimsókn hér í morgun þegar Þóra systir kom með barnabörnin Ívar og Bríet og voru hænunar settar út og þeim gefið brauð og vatn og var þetta mikil upplifun fyrir borgarbörnin.

gullregn_jl_20101.jpgsumarstemming.jpgglymur_og_merar_026.jpgglymur_og_merar_013.jpg


 

 
Júlí hálfnađur
föstudagur, 16 júlí 2010

Þar sem Einar er ekki heill heilsu þá er ekki mikið um ferðalög og má segja að öll áform sumarsins hafi ekki náð fram að ganga fyrir utan það eina að halda upp á afmælið hans :-) Við höfuð það bara náðugt hér heima við og ég vinn í garðinum og endurnýjast á sál og líkama við það, setti niður tré í dag og tók kálgarðinn í nefið ásamt því endalausa verkefni að reyta arfa hirst og her. Stelpurnar fóru með föður sínum í girðingavinnu í Grýtu en hann sat í traktornum og þær gerðu það sem þurfti, ýttu niður staurum, settu tappa í og síðan var vírinn settur uppá og hann strengdur. Vinur okkar Reynir Hjartarson hringdi hér á meðan á þessu stóð og fékk Einar þessa vísu senda í kjölfarið:

Einar hefur ennþá sinnu,

ekki kúrir heim við hlað.

Gott er að stunda girðingarvinnu,

ef gliðnun hefur átt sér stað.

 

Bjartur litli hennar Birtu og Markúsar er orðinn góður í fótunum og hleypur um allt glaður og áhyggjulaus. Næsta þriðjudag förum við svo með þau mæðgin í Svarfaðardalinn þar sem þau fara í hólf til Vilmundar frá Feti. Björk er enn óköstuð en hún fer svo til Kvists og einnig Stássa gamla og Njála þegar þær kasta en þær merar eigum við ekki sjálf.

Næstkomandi þriðjudag verður sónarskoðað undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og munu þá eigendur þeirra mera sem sónast jákvæðar verða látnir vita.  Set að lokum inn myndir af þeim stutta sem ég er ótrúlega ánægð með:-) og af merunum sem hafa það ekki slæmt í hólfinu hjá Kvisti.

bjartur_litli_2_2010_.jpgbjartur_litli_3_2010_.jpgbjartur_litli_2010_002.jpg


 

 

 
Birtu og Ísgerđarbörn
miđvikudagur, 14 júlí 2010

Hér koma myndir af börnum Ísgerðar og Birtu sem heita Ásgerður og Bjartur. Ásgerður er orðin 4 daga gömul og Bjartur tæpra sólahrings gamall. Bjartur er ekki enn farinn að stíga alveg í framfæturnar en hann þarf að æfa sig betur þar sem sinarnar í framfótunum eru  stuttar en það mun lagast á nokkrum dögum samkvæmt upplýsingum frá dýralækni.

birtu_og_bjartur_jl_2010_.jpgvid_hofum_thad_gott.jpgisgerdardottirin_5._daga_gomul.jpgeg_er_svo_anaegd_med_hann.jpg


 

 
Birta eignast rauđan hest
miđvikudagur, 14 júlí 2010
Kl. 00:15 kastaði Birta rauðu hestfolaldi, Markúsarsonur. Hann er dásamlega fallegur eins og móðir sín og á að heita BjarturLaughing

 
 
Birta ađ verđa léttari
ţriđjudagur, 13 júlí 2010

Í kvöld þegar við fórum í okkar hefðbundnu ferð í Grýtu til að líta á graðhestahólfin fyrir nóttina og þær óköstuðu í leiðinni þá sáum við hvar broddur er kominn á spenana á djásninu á bænum henni Birtu. Hún var líka heldur geðvond og beit merarnar sem nálguðust hana svo við verðum á vaktinni í nótt.  Það er að verða heldur þreytandi þessi veðrátta og lét ég mig hafa það að vinna í garðinum í dag með hjálp sláttumannsins hans Valdemars sem jafnframt kom sláttuorfinu í gang en það hafði ekki gengið um hríð.

Það var mikill sorgardagur í  gær þegar Flótti vinur okkar frá Borgarhóli var feldur 22 vetra en hann var ekki frjór lengur og einnig hrjáðu hann gömul meiðsli á afturfæti. Áður en hann var felldur þá voru klippir tveir brúskar úr faxinu á honum til  minningar.  Allir fjölskyldumeðlimir felldu  tár og hann fékk hvildarstað við skjólbeltið á túninu fyrir neðan húsið. Flótti var sýndur á landsmótinu í Reykjavík árið 2000 þá 12 vetra gamall og fékk þá 7.91 fyrir byggingu og 8.62 fyrir hæfileika og aðaleinkun 8.33. Flótti var einstakur töltari og yfirferðin var slík að hann var mældur á 51. km. hraða á tölti og hafði Einar einstklega gaman af að ríða honum og áttu þeir margar ógleymanlegar stundir. Við höfum notað Flótta mikið og hefur hann reynst okkur vel og eigum við mörg tryppi sem við bindum miklar vonir við.

flotti.jpgbubba_og_birta.jpgbubba_og_birta2.jpgflotti_maeldist_a_55_km_hrada_a_tolti.jpg


 

 
Ísgerđur köstuđ.
sunnudagur, 11 júlí 2010
  • Frú Ísgerður kastaði í nótt og eignaðist brúnt merfolald en faðirinn er Kompás frá Skagaströnd. Í gær sáum við að broddur var komin á spenana á henni og var því fylgst með henni vökulum augum og fljótt eftir miðnætti sást í hófa og stuttu síðar var sú stutta fædd. Hún er mjög háfætt og sperrt og vonandi koma Orra og Sunnugenin til sögunnar seinna meir.
  • Stóðhesturinn okkar hann Ölur er kominn hér á heimatúnið með einni meri sem Einar fékk gefins nú á dögunum en hún er undan Safír frá Viðvík. Öl á vonandi að sýna nú í sumar en flensan er búin að hrjá hann þó hann hafi aldrei orðið mikið veikur en hóstað og verið með nefrennsli.
  • olur_rokkvasonur.jpglur_2_mars_012.jpgr_skstuu.jpg

 
Júlí
ţriđjudagur, 06 júlí 2010

Allt gengur vel í stóðhestahólfunum og sjást þeir félagar vera að sinna sínum merum í tíma og ótíma. Húsbóndinn er ekki í fullkomnu standi þessa dagana eftir byltu sem hann hlaut fyrir rúmri viku síðan en staulast nú um á hækjum. Enn bíðum við eftir því að Birta, Björk og Ísgerður kasti en við erum með þær í hólfi á Grýtu og eru þær þar í góðu yfirlæti, Birta fer síðan til Vilmundar og Björk til Kvists og Ísgerði skilum við síðan suður.

Búið er að eitra njóla á Grýtu á þeim svæðum þar ekki eru hross á og kerfilinn verður eitraður á næstu dögum. Eik er búin að vera veik og hefur þurft sýklalyf og aðhlynninu en er öll að hressast.

Set inn til viðbótar nokkrar myndir úr afmælinu :-)

ur_afmaeli.jpgaefmali4.jpg:aefmali6.jpgaefmali3.jpg


 

 

 
Júlí 2010
föstudagur, 02 júlí 2010

Þar kom rigningin og er næstum hægt að sjá hvað móðir jörð er ánægð og sýgur hana til sín. Guðrún mágkona mín fór í Grýtu í gær með stelpunum og tók nokkrar myndir en hún er með mjög góða vél og set ég inn myndir frá þeirri ferð.

Allt gengur vel í graðhestahólfunum og enn að bætast við merar hjá Kvisti. Áttan fór til hans í dag og ein önnur meri sem er nýlega köstuð, við litum til þeirra aftur í kvöld og þá var mikil ró yfir öllu.

tota_og_kvistur_2.jpghvita-sunna_og_krakssonur.jpgkvistur_laetur_vel_ad_meri.jpg


 

 
Kvistur mćttur
mánudagur, 28 júní 2010

Þá er Kvistur frá Skagaströnd mættur til sinna mera í hólfið á Grýtu. Þar eru margar frægar og hátt dæmdar merar sem verulega gaman er að berja augum s.s. Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki svo einhver sé nefnd. Hann var glæsilegur sá brúni þegar honum var sleppt, lofthár og tígulegur með sitt mikla fax. Nokkrar merar eiga eftir að bætast við sem eru enn ókastaðar og svo verður bætt inn í hólfið þegar búið er að sónarskoða frá honum. Það er þegar búið að sjást til hans sinna nokkrum merum svo þetta lítur allt mjög vel út.

Afmælið tókst mjög vel og fóru allir sælir og glaðir héðan í dásamlegu veðri. Vinur okkar Ögmundur Knútsson sá um matinn með dyggri aðstoð vaskra  kvenna og var margrétta matseðill svo allir fengu eitthvað við sitt hæfi. Við þökkum öllu þessu frábæra fólki sem kom og hjálpaði okkur að gera daginn eftirminnilegann bæði með að koma og skemmta sér með okkur og hjálpa okkur við veitingar og skemmtun.

Set hér inn myndir úr afmælinu og af afmælisbarninu með yfir grillurunum þeim Hákoni og Ögmundi.

afmaelissongurinn_sunginn.jpgmaja_og_eirikur.jpghakon_0gmundur_og_einar.jpgimg_1352.jpg


 

 

 
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 1 - 10 af 134