Gleđskapur
mánudagur, 29 desember 2008

Þá er orðið fullbókað undir Auð frá Lundum og þónokkuð er búið að panta undir Markús frá Langholtsparti.  Þetta hefur gengið framar björtustu vonum og erum við mjög ánægð með það.  Þessi dagur er búinn að vera mjög skemmtilegur og byrjaði með því að við mæðgur fórum allar til Línu frænku í svokallað frænkuboð.  Þarna hittast frænkur af Laugalandsætt í beinan kvennlegg ásamt mæðrum okkar.  Þetta er mjög skemmtileg samvera og gaman að hitta þessar frænkur sínar ungar sem eldri.  Síðan komu hingað nokkrir vinir okkar í mat og var setið og spjallað fram á nótt.  Síðan er ætlunin að fara að reka hross fram á Hólakoti í morgunsárið.  Einar járnaði  2. merar í dag og er svo að fara að hella sér í tamningar og þjálfun næstu mánuðina.  Annað er ekki að frétta úr kotinu og lítum við björtum augum á árið sem er í vændum.


 
Gleđileg jól
fimmtudagur, 25 desember 2008

Þar sem tölvukostur heimilisins hefur verið í lamasessi hefur ekkert komið inn á þessa síðu alllengi.  Það sem helst er að frétta er að Ölur er komin heim úr tamningunni og fer síðan aftur í Þúfur þegar eitthvað er liðið á næsta ár. Hann lítur vel út og er kominn vel af stað í tamningunni.  Mjög geðgóður og ljúfur í umgengni.  Einar hefur hann í eldi núna þar til hann fer aftur en svo er bara að sjá og bíða enda er hann bara 4. vetra í vor.

Auður frá Lundum verður hjá okkur fyrra tímabil næsta árs þ.e. frá 15. júní til 20. júlí.  Mikið er búið að bóka undir hann og sennilega þurfum við ekki að auglýsa veru hans hér í sumar. Einar heillaðist af þessum hesti á sl. landsmóti og festi hann í kjölfarið. Ekki minnkaði áhuginn eftir að hafa horft á landsmótsdiskana í nótt.  Markús frá Langholtsparti verður svo seinna tímabilið og kemur hann 15-20. júli og verður eitthvað fram eftir.  Miklar kindasæðingar stóðu hér yfir fyrir jólin og er að koma í ljós þessa dagana að þær eru að lukkast vel.  Húsbóndinn er með hug sinn allan við þessa skýrslugerð og eftirlit og þykir mér verst að hafa ekki náð mynd af honum steinsofandi með grænu gleraugun á nefinu og fjárbækurnar allt í kring. 

Af okkur er annars allt gott að frétta og allir komnir í jólafrí nema húsmóðirin sem er að vinna talsvert um hátíðina.  Við vorum öll stórfjölskyldan á Y-Laugalandi í dag og síðan í Klettagerðinu hjá Erni Inga og Dýrleifu  á morgunn. Annað kvöld er síðan afmæli hjá Sigga í Vestursíðunni. Síðan verður Þóra systir hér með alla sína á gamlaárskvöld og eftir miðnætti er Guðrún með heljarinnar veislu í Hafnarstrætinu.  Síðan höfum við hugsað okkur að bjóða vinum og kunningjum hingað milli jóla og nýárs.  Við fengum öll góðar gjafir og kveðjur og þökkum fyrir hlý orð og fallegar myndir.

Hér er mynd af Auði frá Lundum sem er ættaður frá Höfða að hálfu leiti eins og nokkrar af okkar merum.

 

audur_fra_lundum.jpg

 

Síðan er hér gömul mynd af Markúsi frá Langholtsparti og krækja fyrir kynbótaeinkun.

http://www.bondi.is/Pages/331

marks_fr_langholtsparti.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 
Breyttir tímar
miđvikudagur, 19 nóvember 2008

Allt er breytingum háð segir máltækið og á það vel við á þessum umbrota-tímum.  Við fórum tíl Reykjavíkur í síðustu viku og áttum nokkra góða daga þar.  Einar var á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna og við í búðum á meðan. Við fengum afnot af íbúð sem vinir okkar eiga í næsta nágrenni við Smáralindina og gátu stelpurnar skottast þarna á milli staða.  Þegar heim var komið fékk ég að vita að ég hefði fengið starf sem ég sótti um og fer ég nú að hætta minni vinnu á gjörgæslunni og tek við sem fræðslustjóri hjúkrunar á FSA.  Ég hlakka mjög til en samt er eftirsjá af vinnufélögunum sem ég er búin að vinna með í mörg ár og einnig því að sinna sjúklingunum....en ég losna við vaktirnar og er að fara að vinna að krefjandi og skapandi verkefnum. 

Einar er búin að hafa mikið að gera í sveitarstjórnastússi þar sem verið  er að vinna að því hvar er hægt að spara og draga saman á krepputímum.  Einnig er fengitími hjá kindunum að bresta á og hrútaskráin skoðuð í þaula.  Þau feðgin öll voru í því í kvöld að taka svampa úr ánum og voru þær systur í essinu sínu. Síðan taka við jólahlaðborð um helgina og fyrst er að nefna jólaboðið hjá heilsugæslunni sem er á föstudagskvöldið.  Það er alltaf mjög fjörugt og skemmtiatriðin frábær.  Síðan á að skýra Heiðrúnu litlu á Hrafnagili á laugardaginn og svo förum við með vinafólki okkar í Mývatnssveit um kvöldið.   Einar ætlar svo að reyna að fara í rjúpur á sunnudaginn og redda jólamatnum.  

 

 

 
Fimmtudagur
fimmtudagur, 06 nóvember 2008

Hér er búin að vera einmuna veðurblíða og fórum við Guðrún mágkona í gær að tína reyniber og nú í dag sortulyng til að gera jólaskreytingar.  Jóna á Bringu fór með okkur í mikla ævintýraferð í Leyningshóla og fundum við mikið af iðagrænu sortulyngi svo nú er bara að hefjast handa.  Við erum mikil jólabörn í þessari fjölskyldu og höfum gaman af að stússast fyrir jólin. Tónlistarskóli Eyjafjarðar er 20 ára þessa dagana og mikið um að vera í vikunni.  Aðal tónleikarnir eru síðan á laugardaginn og mun Þórhildur spila með kammerhóp sem hún er búin að vera að æfa með í haust.  Tónlistarskólinn styður vel við bakið á okkar góða grunnskóla og vega þeir hvern annan upp.  Við erum svo að fara til Reykjavíkur  um miðja næstu viku því Einar er  að fara á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna.  Við  mæðgur ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman á meðan og síðan á að hitta vini og kunningja.

Hér koma myndir af dætrunum með bestu vinkonunum.

vi_hah_xd.jpgohhh___vii_ertum_bara_svo_osom_lll.jpg  engla_kossar_l.jpg

 
Hryllingsvaka
sunnudagur, 02 nóvember 2008

Þá er þessi helgi liðin og við öll komin heim enda er heima best.  Við fórum ásamt Bjössa og Ester á Hryllingsvöku á Snæfellsnesi eða nánar tiltekið í Snorrastaði.  Þetta var vel heppnað og stíf dagskrá frá föstudegi fram á laugardagskvöld.  Við mættum þarna á Snorrastaði á föstudagskvöldið en þá var Einar orðinn veikur og var háttaður í koju með hita og umgangspesti.  Við hin fórum í kjötsúpu og gleðskap sem stóð fram á nótt.  Þarna var margt um manninn og margir skemmtilegir einstaklingar mættir til gleðinnar. Á laugardagsmorguninn var hafragrautur og slátur í morgunmat sem matreitt var af Pétri Pétursyni (Stera-Pétri) en síðan var farið í ferð um Borgarfjörðinn sem Ari Jóhannesson læknir á Akranesi skipulagði.  Við fórum í Landnámssetrið í Borgarnesi og sáum þar 2. sýningar.  Þar var síðan borðað og haldið áfram til Hvanneyrar og fengum við leiðsögn um staðinn.  Síðan var farið að Miðfossum og hestamiðstöðin þar skoðuð.  Loks var farið að Ölvisholti og mikill kvenskörungur, Guðrún Fjelsted,  heimsótt  og tók hún á móti okkur með miklum veitingum og skemmtiatriðum.  Síðan var farið til baka og farið í pottinn og tekið sig til fyrir kvöldið.  Blótið var síðan í félagsheimili þarna í sveitinni.  Veitingar og skemmtun voru að hætti Hryllinga, sungið mikið, fluttar ræður og sagðar sögur.  Við fórum í háttinn um kl. 02:30 og vöknuðum við Einar hress og kát um kl 8. og fórum í pottinn en þá flögraði yfir okkur örn og var það tilkomumikil sjón.  Á heimleiðinni komum við í Flugumýri til Önnu og Palla en höfðum við hugsað okkur að fara og skoða folann hjá Mette en hún var ekki heima.  Sú heimsókn býður betri tíma en hún segist vera ánægð með folann og tamningin fari vel af stað .

hugga_og_einar.jpg ester_og_bjossi.jpg hja_katrinu.jpgkokkurinn_gestgjafinn_og_sagreifinn.jpg ad_rada_malin.jpg ajatolla.jpgjon_a_hognastodum.jpg asamt_einum_laugarvatnsbrodirnum.jpg

 

 
Vetur
sunnudagur, 26 október 2008

Nú er kominn mikill vetur og það sést varla á milli bæja. Kindurnar voru rúnar  í gær og rúningarmeistarinn var Árni Davíð.  Einar fór svo í morgunsárið til að gefa kindunum svo þær geti haldið á sér hita svona kviknaktar. Næstu helgi verður farið á Snorrastaði á Snæfellsnesi og skemmt sér þar með Hryllingsfélaginu og hlökkum við mikið til.  Við skólasysturnar í hjúkruninni hittumst í vikunni hjá frú Hildigunni og borðuðum þar frábærann mat sem meistarinn Ögmundur matreiddi fyrir okkur.  Það var mikið spjallað, bæði líf og starf  og ástandið í samfélaginu. Það er frábært hvað við skólasysturnar höldum hópinn og er það alltaf tilhlökkunarefni að hitta þær.  Við erum bara 9. talsins og búum við 8. hér á svæðinu en Kersten býr í Skagafirðinum.  Þetta eru upp til hópa miklir forkar sem hafa látið til sín taka á hinum ýmsu sviðum. En vonandi fer nú veðrinu að slota og heilsan að koma því hér hefur geysað umgangspest.

arni_runingsmadur.jpgdasamleg_ull.jpgull.jpgflekka.jpg

 
Haust
föstudagur, 17 október 2008

Það er að verða haustlegt hér í Eyjafirðinum og alls ólíkt því sem var á Ítalíu en þar var hitinn 25-28. gráður. Florence er mögnuð borg og slær Prag næstum því við.  Við skoðuðum Ponte Vecchio brúna, umhverfi Uffizi listasafnsins þar sem eftirmynd af Davíðnum hans Michelangelo er.  Doman var líka dásamleg með myndum í hvelfingunni sem málaðar eru af gömlu meisturunum. Við gengum um öll þessi gömlu stræti og götur og menning og listir á hverju götuhorni.  Ráðstefnan var mjög fín og margt nýtt sem við náðum að tileinka okkur í faginu.  Við hittum fólk frá mörgum löndum en ítalarnir voru ekkert sérlega hupplegir, sennilega búnir að fá nóg af túristum. Hér var verið að slátra í dag, svona í seinna lagi.  Þeir bræður Ársæll og Einar mættu og voru ekki lengi að þessu, enda með eindæmum röskir og snyrtilegir.  Á morgun verður sölusýning í nýju reiðhöllinni á Akureyri og mikið um að vera.  Við gömlu hjónin ætlum þó ekki þangað heldur verðum við að ganga um í Fnjóskadal og hlusta á Þór Sigurðsson segja frá skemmtilegum sögum af því svæði.  Síðan verður farið í Safna-safnið og það skoðað og borðað í Sveinbjarnargerði um kvöldið.

ponte_veccio.jpglokahofid.jpgflottur_matur.jpgor__sellandi.jpgmaju-dottir.jpg

 

 

 
Liđin vika
mánudagur, 06 október 2008

Til að hugsa um eitthvað annað en þjóðargjaldþrot og krepputal er best að skella einhverju hérna inn.  Liðin vika var að mestu lík svo mörgum öðrum.  Hrossasmölun var á laugardaginn og smöluðu Einar, Jón og hans fólk Hrafnagilsfjallið.  Hrossin litu vel út en ekki náðust öll í fyrstu smölun en þau sem náðust komu vel undan sumri.  Ölur, þriggja-vetra stóðhesturinn okkar fór síðan í Skagafjörðinn til Mette og ætlar hún að sjá hvað í honum býr.  Við sjáum svo til hvað úr verður. Við fórum að gamni á stóðréttirnar á Melgerðismelum á laugardaginn og drifum okkur síðan á ballið um kvöldið.  Það var vel mætt og mikið stuð á fólki.  Það er gaman ef það getur myndast einhver hefð í kringum þessar réttir og hestafólk gert sér dagamun.  Palli og Anna í Flugumýri komu hér á sunnudaginn og það er alltaf gaman að hitta þau.  Voru að kíkja á Sigga sem er komin á heimavistina og orðinn MA-ingur.

Á morgun fer ég síðan suður og gisti hjá Jórlaugu vinkonu minni og ætlum við gömlu skólasysturnar að hittast hjá henni annaðkvöld og eiga góða stund. Við förum svo til Florence á miðvikudaginn, ekki bermilegt með Evruna í nærri 200. kr.  En þetta verður bara gaman. 

 
Sónarskođun
sunnudagur, 28 september 2008

Það var verið að sónarskoða í dag undan Sveini-Hervari og voru báðar merarnar hans Hákonar með fyli, Stássa og Áttan.  Einnig voru tvær merar fylfullar frá Sverri og Jónu á Bringu sem voru hjá Öl, brúna Rökkvasyninum okkar.  Þessi Ölur er að fara til Mette núna 1. okt og ætlar hún að hafa hann í 2. mánuði og kanna hvað í honum býr.  Við fórum fram á Melgerðismela ásamt Gunnlaugi Magnúsi og náðum í tvo stóðhesta úr hólfi þar og fórum með þá í Hólakot.  Við  eigum annan þ.e. Svarra, sem myndin hér að neðan er af, og Bjössi og Ester hinn.  Þar lentum við í kvöldmat og áttum mjög góða stund.  Í gærkvöldi vorum við hjá Kalla og Sirrý í þvílíku veislunni ásamt Margréti Jóns og Guðmundi, þar var líka mjög gaman og margt spjallað.  Við vöknuðum frekar þreytt gömlu hjónin og fórum í morgunkaffi á Stafn til Þóru sys.  Íbbi er á fullu að setja utaná húsið og er þetta að verða eins og danskur herragarður.  Einnig er verið að klára rýmið þar sem stofan og eldhúsið eru.  Annað er ekki að frétta af þessari helgi og eins og áður líða þær á örskotshraða.

 

svarri_2.jpg svarri_5.jpg

 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 11 12 13 14 15 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 131 - 140 af 144