|
mánudagur, 21 júní 2010 |
|
Þá er hann Glymur frá Innri- Skeljabrekku mættur á svæðið og byrjaður að sinna sínu hlutverki. Um helgina komu merarnar í hólfið á Grýtu sem er grasgefið og víðfemt að vanda með rennandi vatni þannig að allar aðstæður eru sem bestar. Við unnum um helgina eins og enginn væri morgundagurinn og Einar kláraði að girða Brúnahólfið með hjálp Bjössa og Ester og aðfaranótt laugardagsins fluttum við þangað öll okkar hross sem ekki á að ríða á eða temja á einhvern hátt í sumar. Þeir Bringu-feðgar Sverrir og Reynir jr. hjálpuðu okkur við það. Þökk sé þessu góða fólki. Glymur mætti svo í gærkvöldi en var inni í nótt og fékk í morgun ormalyf og vitamín hjá henni Elfu svo hann er tilbúinn inn í sumarið. Hann lýtur feikivel út, feitur og pattaralegur og hefur pestin ekki verið að angra hann fyrir utan nefrennsli.
Veðrið (mér er tamt að tala um það) var yndislegt í morgun og settumst við Einar niður í hólfið hjá folaldsmerunum og þeim óköstuðu sem er í skjóli við skóginn í Grýtu og heyrðist fuglaniður líkt og í útlöndum. Birta mín er orðin þung á sér og alltaf jafn falleg en það styttist í Markúsarafkvæmið og set hér mynd af henni frá því sl. sumar. Venus frá Tóftum verður þó á undan henni þar sem mjólk er farin að sprautast úr henni.
Þræta frá Syðri-Hofdölum fór til Hrímnis frá Ósi og Hrafntinna til Hófs og Langa-Brúnka til Gígjars og gerðist þetta allt um og yfir helgina.
Það sltyttist í afmælið og undirbúningur stendur sem hæst, Arnaldur Vilmar kemur til okkar frá Noregi á morgun og verður hér í nokkrar vikur. Áætlað er að Kvistur komi 28.06 og hryssur verða því að koma í hólfið þann 27.06 en við munum hafa samband við hryssueigendur
Set inn myndir af Sóldögg minni sem er undan Lýsu frá Höfða og Þokka frá Kýrholti og einnig mynd af Þrætu sem var tekin áður en hún fór til Hrímnis.
  
|
|
|
ţriđjudagur, 15 júní 2010 |
|
Glymur kemur þann 20. júní og eru hryssueigendur beðnir um að koma með hryssurnar þann 18.06
Jóna frænka hefði verið búin að láta nokkur orð falla um tíðina og dásamað hana ef hún væri á lífi og enn er það svo að ég horfi í Torfufellsfjallið á kvöldin til að sjá hvernig veðrið verði daginn eftir eins og gamla fólkið á Laugalandi gerði en ef sól skín á það seint að kvöldi þá verður léttskýjað daginn eftir.
Í gær fengið við góða heimsókn en Hólakotsfjölskyldan kom hér færandi hendi og gáfu þau Einari folatoll undir Hóf frá Varmalæk sem hann ef afar ánægður með en sá gamli verður 50 ára þann 23. júní og verður mikið um að vera hér á Brúnum helgina eftir. Búið er að panta tjald fyrir 100 manns og 20 kíló af bláskel sem verður á boðstólnum ásamt fleiru sem Ögmundur Knútsson töfrar fram en hann er snillingur í matargerð sá maður.
Þá er það að skýrast hvaða stóðhestar verða notaðir þetta sumarið og eru það: Kvistur frá Skagaströnd, Glymur frá Innri Skeljabrekku, Gígjar frá Auðholtshjáleigu, Vilmundur frá Feti, Hófur frá Varmalæk og Hrímnir frá Ósi. Þetta eru allt miklir snillingar sem vonandi færa okkur enn betri hesta.
Samskandinavíska skrautfuglafélagið datt heldur betur í lukkupottinn í dag þegar því áskotnaðist kynbótahani úr Breiðdalnum og eru þeir félagar afskaplega ánægðir og stoltir með hanann sem kemur til með að valda straumhvörfum í hænsnarækt hér á landi.
|
|
|
laugardagur, 12 júní 2010 |
|
Afmæli Funa var í gær og fórum við á afmælishátíðina á Melgerðismelum sem lukkaðist vel, til hamingju með afmælið Funafélagar. Í dag var dýrðarinnar veður og fórum við í útskriftarveislu til Söndru Grettisdóttur frænku minnar sem var að útskrifast með B.sc próf í umhverfis- og orkufræðum, dugleg stelpan sú.
Þá fer að styttast í að stóðhestarnir komi en Glymur kemur þann 20. júní og Kvistur þann 7. júlí og ef hann kemur fyrr þá munum við láta vita af því.
Kindurnar eru farnar á fjall og bara hrútarnir eftir, mikið var gott að losna við hópinn og blóminn mín og grænmetið ekki lengur í hættu.
Set hér inn myndir af stelpunum mínum sem eru loksins komnar frá Grímsey og af þeim aldraða sem brátt á afmæli.
 
|
|
|
ţriđjudagur, 08 júní 2010 |
|
Þoka kastaði í nótt og fengum við bleikan hest undan henni og Kompási frá Skagaströnd. Þá eru hestarnir orðnir 4 og 1 meri og María og Hákon með 1 meri. Birta og Ísbjörg Orradóttir hljóta því að koma með hryssur svo þetta jafnist út. Í fyrra fengum við bara hryssur og 1 fola svo við getum ekki kvartað. Fjarka- og Síðusonurinn hann Spaði stillti sér upp og ekki vantar grobbið og set ég myndir inn af þeirri pósu. Set einnig inn mynd af móður hans henni Síðu Bjarkar- og Flóttadóttur sem tekin var í
fyrra.
Veðrið var yndislegt í morgun og er ólýsanlegt að sitja á Grýtugrundum og heyra fuglasönginn ásamt því að horfa á allt nýfædda ungviðið.
  
|
|
|
mánudagur, 07 júní 2010 |
|
Hér hefur mikið gengið á undanfarna daga. Tvö folöld hafa fæðst og öllu stóðinu var gefið ormalyf, hófar klipptir og veturgömlu tryppin tekin í frumtamningu og hanteruð samkvæmt kúnstarinnar reglu. Fyrst er að nefna að Áttan kastaði gullfallegri hryssu undan Auði frá Lundum á laugardaginn og í morgun hafði Lísa kastað rauðstjörnóttu hestfolaldi undan Kompási frá Skagaströnd. Tindur hennar Kötlu var geltur og sá "afi" hans um geldinguna. Tind gáfum við Kötlu vinkonu stelpnanna í fermingargjöf en hann er undan Andvara sem er undan Eldingu frá Blönduósi og Adam frá Ásmundarstöðum. Ívar Örn Hákonarson kom til okkar um helgina og tók heldur betur til hendinni með Einari og var miklu afkastað eins og fyrr segir en hans fjölskylda á Áttuna sem er fyrstu verðlauna meri svo það var gaman að hún skildi kasta meðan hann var hér.
Stelpurnar eru enn í Grímsey en koma á miðvikudaginn. Á sunnudaginn héldu afkomendur Laugalandsbræðranna Hjörleifs og Aðalbjörns upp á 100 ára afmæli ömmu Rúnu sem tókst einstaklega vel og mættu allir sem á landinu voru staddir. Áttum við góðan dag í Laugarholti og minntumst hennar á ýmsa vegu. Myndirnar hér að neðan eru misgóðar þar sem þær eru teknar á síma en segja sína sögu.
  
|
|
|
föstudagur, 04 júní 2010 |
|
Hrafntinna kastaði sl. nótt og reiknuðum við með að fá hryssu undan henni í þetta skiptið en hún hefur áður átt 4 fola og svo var einnig nú. Það kom brún-stjörnóttur hestur undan henni og Auði frá Lundum og kannski fékk hann stjörnuna frá afa sínum honum Stjarna frá Vatnsleysu sem er afi hans í móður ætt og langafi hans í föðurætt. Hrafntinna er móðir Öls og er mjög falleg og tíguleg hryssa með gífurlega mikið fax og tagl. Hana fengum við á sínum tíma frá Sigurði íHöfða í Borgarfirði. Það var sama brasið með hana og Löngu-Brúnku en hún heildist ekki og kom Kalli vinur okkar sem er dýralæknir og reddaði málunum í þetta skiptið. Þetta er merkilegt að þetta skuli gerast tvisvar röð en við höfum aldrei lent í þessu áður.
Stelpurnar eru búnar að vera í Grímsey síðan á mánudaginn með Kötlu vinkonu sinni og eru alsælar eins og alltaf, taumlaust dekur að hálfu ættingja og endalaus hreiður og egg til að skoða en það á heldur betur við þær. Við erum því ein i kotinu og hafa dagarnir hjá mér farið að mestu í garðvinnu.
Set hér inn myndir að Hrafntinnu og syninum sem er ekki enn búinn að fá nafn en það kemur fljótlega.
  
|
|
|
sunnudagur, 30 maí 2010 |
|
Þá liggja niðurstöður sveitastjórnakosninganna fyrir og hélt meirihlutinn velli hér í sveit með fjóra menn en minnihlutinn áfram með sína þrjá. Þetta er mjög gleðilegt og sveitinni til góðs. Miklar sviptingar hafa átt sér stað um land allt og er fólk að sýna að spilling og klíkuháttur á ekki upp á pallborðið og nýr listi á Akureyri nær hreinum meirihluta. Hér var grillað í góðra vina- og ættingja hópi á nýja Weber grillinu sem er dásamlegt. Fórum við svo yfir í Félagsborg og var mikið fjör þar og ótrúlega margir sem komu þangað og glöddust.
Mikið var um gesti og gangandi hér í dag sem og er yfirleitt allar helgar og gleðjumst við yfir því að fólk vilji koma hingað og spjalla um allt milli himins og jarðar þó hestar séu oft nefndir á nafn. Í morgun tókum við daginn snemma og kusum og síðan sýndi Birgir okkur hann Öl en hann verður sýndur nú í byrjun júní. Hann sýnir flotta takta og á góðum degi gæti allt gerst.
  
|
|
|
fimmtudagur, 27 maí 2010 |
|
Jæja þar kom að því, Síða og Langa-Brúnka köstuðu í nótt. Síða kastaði brúnskjóttu hestfolaldi en faðirinn er Fjarki frá Breiðholti og Langa-Brúnka kastaði brúnu merfolaldi og faðir þess er Auður frá Lundum. Einar tók fljótt eftir því að Langa-Brúnka losnaði ekki við hildarnar og Elfa dýralæknir tók á móti okkur með hana og folaldið og bjargaði málunum. Merin var farin að henda sér niður og velta sér og sagði Elfa að þær gætu orðið fárveikar og drepist á nokkrum dögum ef ekkert er að gert og vonum við það besta fyrst svona snemma var gripið inn í. Við höfum séð og heyrt af allnokkrum folöldum fæddum undan Auð þetta vorið en við eigum von á einu til viðbótar.
Ég lauk vinnu minni í Hrafnagilsskóla í dag þetta skólaárið og er þá komin í sumarfrí frá skólanum en Einar á eina viku eftir og þá er hann kominn í frí.
Stelpurnar eru byrjaðar að vinna hjá ömmu sinni í ferðaþjónustunni og fengu frí frá skólanum í fyrradag því þá var mjög mjög mikið að gera en vinnan byrjar svo fyrir alvöru um miðjan júní.
    
|
| |
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 21 - 30 af 144 |