Valur kominn
sunnudagur, 16 maí 2010

Þá er Valur frá Úlfsstöðum kominn í hús og gekk ferðin á norðurlandið vel. Hann gekk upp á kerruna eins og hann hafi aldrei gert annað þegar við náðum í hann niður á Leiru en hann kom með manni að austan sem átti leið norður. Birgir stefnir á að sýna Öl í júni og vonandi gengur sú sýning vel og að hann veikist ekki eins og svo mörg hross. Sauðburður er langt kominn og hefur gengið afar vel það sem af er, lömbin eru stór og stæðileg og skepnurnar hraustar. Einar er á kafi í sveitastjórnarkostningaundirbúningi og fór öll helgin í það vafstur. Ég var að vinna á gjörgæslunni þar sem nóg var að gera og alltaf gaman að hitta vinnufélagana. Við fórum öll í árlega vorferð á miðvikudaginn var og enduðum svo hér á Brúnum og var mikið fjör fram eftir nóttu. Stelpurnar lesta stíft undir prófatörn sem verður í næstu viku en eftir næstu helgi eru þær svo gott sem búnar með veturinn þar sem síðasta vikan einkennist að útiveru og leik.

valur_4.jpgvalur_5.jpg


 

 
"Eigum að rækta skörunga"
laugardagur, 08 maí 2010

"Eigum að rækta skörunga".. er haft eftir Erlingi Erlingssyni í stóðhestablaði Hestar og menn. Hann segir að  flestir skörungar séu næmir og stoltir, þeir verði oft lúsþægir með tímanum þótt þeir láti ekki vaða ofan í sig í tamningunni. Erlingur segir einnig: "Kvistur frá Skagaströnd er tortrygginn að eðlisfari, enda stutt í Höfða-Gust í gegnum móðurina. Hann er ekki nema á sjöunda vetur, en það getur hvert barn riðið á honum núna. Hann er mikill skörungur. Að mínu mati eigum við að leggja áherslu á ræktun skörunga. Framhugsun, afl og næmi eru eftirsóknarverðustu eiginleikarnir..." Gaman að heyra þetta og hlökkum við til að fá þennan skörung til okkar í sumar. Fullt er undir Kvist og kominn biðlisti en hugsanlegt er að koma að merum þegar búið verður að sonarskoða undan honum eftir fyrsta gangmál.

Hér er allt á haus í vorverkum og sauðburði. Ærnar bera hver af annari og standa stelpurnar vaktina með föður sínum og er Guðbjörg sérstaklega lagin við burðarhjálp, hefur náð að snúa lömbum í móðurkviði, náð í fætur og hausa sem ekki bera rétt að og horfir aldraður faðir hennar á hana með miklu stolti að öllu þessu loknu.

Dagurinn í dag fór í að raka og taka til í garðinum en Jóhannes bróðir kom og klippti hér allt og snyrti. Gulræturnar eru komnar í mold og matjurtagarðurinn var stunginn upp. Inga mágkona mín kom hér í morgun með mikið að fjölæringum sem hún sáði fyrir í vor og verða þeir í uppeldi hjá mér þar til veður leyfir útplöntun. Einnig erum við að gera tilraunir með margar gerðir af laukum þ.á.m. hjálmlauk sem er víst mikið hnossgæti.

kvistur_fra_skagastrond.jpgrollur2009_95.jpgallt_i_bloma.jpgkerling_i_baksyn.jpg


 

 
Valur frá Úlfsstöðum
miðvikudagur, 28 apríl 2010

Þá er sumarið komið samkvæmt dagatalinu og er ekki laust við að það finnist í loftinu. Fuglarnir eru í það minnsta farnir að vekja mann klukkan fimm á morgnana með miklum og fögrum söng. Við fórum á sumardaginn fyrsta austur á land til að líta á hest (hvað annað) og heimsóttum Magnús og Siggu frá Úlfsstöðum og var okkur tekið afskaplega vel. Úr varð svo að fest voru kaup á fola á þriðja vetur undan Gusti frá Hóli og fyrstu verðlauna merinni Tign frá Úlfsstöðum sem er undan Huga frá Hafsteinsstöðum og Vöku frá Mýnesi sem er líka meri með fyrstu verðlaun. Tign á síðan systir sem hefur fyrstu verðlaun og heitir sú Örk frá Úlfsstöðum. Það eru því sterkir stofnar sem standa að þessum fola í báðar ættir en svo er bara að sjá hvort það skili sér.

Bjarkar (sá brúni) var byggingadæmdur um helgina út í Austurríki og fékk 7.89 en hann er á fjórða vetur, gaman verður svo að sjá hver hæfileikadómurinn verður.

Sauðburður er byrjaður hér á bæ og fer vel af stað en fjórar ær eru bornar en sauðburður byrjar síðan fyrir alvöru um helgina. Ég set svo inn myndir af stóðhestunum tveimur, gimsteinunum mínum tveimur og þeirri hvítu sem velur bara hvítt og það handgert.

valur_4.jpgvalur_6.jpg20100326-247.jpglitli_brandur.jpggudbjorg_2010.jpgtota_2010.jpg


 

 
Glymur allt sumarið
þriðjudagur, 20 apríl 2010

Glymur á Brúnum frá 20. júní-verður bæði gangmál.

 

Nú er svo komið að vegna eldgossins í Eyjafjallajökli verður Glymur frá Innri-Skeljabrekku hér í allt sumar. Hann átti að vera í Landeyjunum fyrra gangmálið en ástandið er þannig að ekki þykir vænlegt að hafa hestinn þar. Fullt er undir Glym seinna gangmál en nú er allt opið með það fyrra. Áhugasamir geta haft samband við okkur ef þeir hafa hug á að halda undir kappann og þeir sem búnir voru að festa sér pláss geta komið með merarnar fyrr en áætlað var og getur þá losnað um pláss í seinna gangmál.

Viið mæðgur skelltum okkur til Reykjavíkur á föstudaginn og litum í búðir og nutum samvista við vini. Síðan birtist heimilisfaðirinn á sunnudagsmorguninn og fór með okkur í heimsókn til Andrésar á Bringu og það er nú meiri hetjan sá drengur. Hann er í strangri lyfjameðferð vegna eitilfrumuhvítblæðis og mun dvelja næstu mánuðina á LSH og tekur hann þessum veikindum með ótrúlegu æðruleysi. Hann ætlar að halda tveimur merum undir Glym og er m.a. búin að fá lánaða gæðingsmeri frá afa sínum og ömmu á Bringu til þessa. Hina merina á hann sjálfur en hún er í tamningu hjá Birgi Árna.

Við fórum síðan í fermingu til hennar Lovísu Snorradóttur en hún er dóttir Rósu vinkonu minnar frá Hvassafelli. Á meðan við vorum í burtu bar ein kind stærðarinnar hrút og tók Sigga vinkona okkar á móti honum og mátti vart tæpara standa að hann lifði þetta af en allt fór vel.

Ég set hér inn myndir úr myndasafni fjölskyldunnar og eina af Glym úr stóðhestaveislunni á Suðurlandi í fyrra.

svo_star.jpgme_stelpunum_sinum.jpghjalparhellan_hans_pabba.jpgglymur6.jpg


 

 
Vor í lofti
laugardagur, 10 apríl 2010

Fljótt skipast veður í lofti og þessa dagana er vor í lofti, sunnan andvari og 10 stiga hiti. Við fórum í morgun og náðum í hest út í Höskuldsstaði sem var þar í tamningu og ætlum við að hafa hann fyrir Arnald vin okkar Bárðarson. Flottur klár undan Gára frá Auðsholtshjáleigu.

Í vikunni seldum við Njálu okkar en hún er eina merin sem við eigum undan Svölu gömlu en hana var Einar með á sínum tíma á Hólum. Við vorum til í að láta hana vegna þess að við eigum gullfallega meri undan henni og Öl. En Njála fer á góðan stað á vesturlandinu en eigendurnir eiga bróður hennar sem hefur reynst þeim mjög vel. Njála er með fyli undan Markúsi frá Langholtsparti og verður það trúlega mikill reiðhestur sem þar kemur. Við eigum líka graðhestsefni undan henni og Rökkva frá Hárlaugsstöðum.

Mikil vinna á sér stað þessa dagana í gróðurhúsinu og er allt að kveikna þar, komið brum á eplatréið og vínviðinn og lyngrósin skartar sínu fegursta enda búin að vera við kjöraðstæður í vetur. Margrét danadrottning er dásamleg eðalrós sem ilmar langar leiðir og er hún einnig komin með brum. Ég hlakka til sumarsins og til að sjá hvernig allur gróðurinn kemur undan vetri.

njala.jpgsvarti-g.jpglyngros.jpggamli_balinn_fra_laugalandi.jpg


 

 
Apríl
mánudagur, 05 apríl 2010

Þá eru páskarnir á enda og hafa þeir verið dálítið öðruvísi en gengur og gerist hér á bæ. Við vorum það óheppin að fá hræðilega maga- og uppgangspest og svo var ég að vinna alla páskana á gjörgæslunni. Öll áform varðandi hitt og þetta féllu því um sjálft sig en sem betur fer eru allir að ná heilsu.

Einar hefur þó náð að ríða talsvert út enda búinn að vera í 10 daga fríi. Hann er farinn að fara túra á Lillunni og Golu en það eru merar á 5. vetur og hafa þær verið með eindæmum auðveldar og munu koma til með að verða góð reiðhross.

Þessa stundina er skollinn á glórulaus bilur og sér varla út úr húsi og mun svipað veður vera um allt land.

Set hér inn mynd af henni Síðu Flótta- og Bjarkardóttur en hún er fylfull eftir hann Fjarka frá Breiðholti sem var á Bringu sl. sumar og fengum við góðar fréttir af honum en hann er í þjálfun hjá Erlingi í Langholti. Einnig grunar okkur að sú rauða hér fyrir neðan sé einnig fylfull eftir Frosta frá Efri-Rauðalæk en hún sónaðist geld sl. sumar.

copy_of_dsc03071.jpgfrosti_003.jpg


 

 
Kvistur
þriðjudagur, 30 mars 2010

Húsfrúin er hálf lurkum lamin eftir mikla krullukeppni í gærkvöldi en vetrarleikar FSA standa nú sem hæst. Gjörgæslan hefur staðið sig vel í gönguskíðakeppni og hampaði fyrsta sætinu í keilu og náðum við öðru sætinu í krullunni í gærkvöld.  Miiklar mútur eru einnig í gangi til dómaranna og ýmislegt í boði úr skápum deildanna.

Um helgina fengum við hingað gesti frá Þýskalandi, þá Hoffman feðga og var mikið skoðað af hrossum. Þeir voru hressir og kátir og gaman að fá þá í heimsókn.

Ungfolakeppni var haldin á Suðurlandi um liðna helgi og í öðru sæti í flokki 2 vetra fola var Kolskeggur frá Kjarnholtum en hann er undann Kvisti frá Skagaströnd.

Guðbjörg fer í knapamerkjaprófið í dag og ætlar svo að halda áfram að því loknu og taka knapamerki númer tvö líka.

suurfer2010_006.jpg kvistur_3.jpg


 

 

 
Mottumars
föstudagur, 26 mars 2010

Er þessa stundina að horfa á mottumars með öðru auganu, frábært framtak og ættu allir að leggja sitt af mörkum. Við hringdum að sjálfsögðu og studdum hrossaræktarráðunautinn hann Guðlaug Antonsson.

En annað mál, mikið hefur verið hringt undanfarið og pantað undir Kvist frá Skagaströnd og eru það mestmegnis sunnlendingar og er það trúlega vegna þess að þeir sjá meira af honum en við hér norðan heiða. 

Í dag fengum við sendar myndir af Bjarkari en hann er kominn til Austurríkis og eins og sjá má er hann þar í sól og sumaryl.

Skólafólkið er komið í páskafrí og eru þessa stundina að koma inn eftir marga reiðtúra, rauð og sælleg.

20100326-247.jpg20100326-172.jpg20100326-188.jpg20100325-157.jpg


   

 
Þræta frá Syðri-Hofdölum
þriðjudagur, 23 mars 2010

Hér koma myndir af annari merinni sem Einar fékk í skiptum fyrir Svarra og heitir hún Þræta frá Syðri-Hofdölum. Þetta er falleg meri og hefur yfir að búa flottum hreyfingum en við náðum í þær stöllur Þrætu og Pálínu í Möðruvelli sl. helgi. Veðrið hefur verið vætusamt undanfarið og þeir sem ríða út hafa verið hálf kaldir og hraknir en látið sig hafa það. Það styttist í páska og hlökkum við öll í fjölskyldunni mikið til, stelpurnar eru í miklum prófaundirbúningi þessa dagana og verður fríið langþráð.

raeta_fra_sudri-hofdolum.jpgthraeta4.jpgthraeta_face_3.jpg


 

 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 31 - 40 af 144