Rigning og rok.
laugardagur, 06 mars 2010

Síðastliðinn fimmtudag fórum við og skoðuðum Öl hjá Birgi Árna. Hann reið honum fyrir okkur í reiðhöllinni á Akureyri og vorum við mjög ánægð með útkomuna. Hann er allur að styrkjast, flottur á brokkinu og töltið allt að koma hvað fótaburð og rými varðar. Hann var byggingadæmdur sl. vor og fékk þá 7.94 og ætti að fara vel yfir 8.0 í vor eða það vonum við að minnsta kosti. Við fórum í morgun og náðum í meraranar okkar sem hafa verið í tamningu á Grund hjá henni Línu en 2. þeirra eru á 4. vetur og eru orðnar reiðfærar og Eik farin að brokka og tölta með fínan höfuð- og fótaburð. Einar ætlar svo að halda áfram að ríða á henni og svo sjáum við hvað setur.

Það er búið að vera mjög hvasst og mikil rigning undanfarið svo ekki hefur verið riðið mikið út en unnið þeim mun meira innivið og út í gerði. Einar hefur líka verið að járna og Guðbjörg að skipta faxi og kemba. 

Set hér inn nýjar myndir af Öl en fleiri eiga eftir að koma þegar við náum þeim út af vélinni.

lur_2_mars_012.jpg


 

 
Kompás að gera það gott.
miðvikudagur, 03 mars 2010

Nýverið var haldin folaldasýning í reiðhöllinni á Hvammstanga og þar var efnilegasta hestfolaldið undan Kompási og folaldið sem var þar á eftir var undan Þjóð frá Skagaströnd og Sólon frá Skáney en Þjóð og Kompás eru sammæðra  undan Sunnu frá Akranesi. Efnilegasta hryssan var undan alsystir Sunnu og Þresti frá Hvammi og má því segja að ræktunin sem er kennd við Sunnukvisti hafi farið á kostum.

Kompás er í tamningu og þjálfun í Langholti hjá Erlingi og Viðju og að þeirra sögn fer hann best af stað af þeim systkinum sem þau hafa tamið en þar má nefna Kvist frá Skagströnd og Þjóð frá Skagströnd. Við erum farin að hlakka til sumarsins en þá eigum við von á nokkrum folöldum undan Kopási. Þess má geta að honum er enn óráðstafað í sumar en hann er nú á fjórða vetur og ekki ólíklegt að hann verði á landsmóti í sumar.

Set hér inn myndir af Kompási og Guðjörgu og Flugu en hún ríður út á henni núna og líkar vel.

komps_.jpgkompas_2009_3_vetra.jpgeinar_og_komps.jpgbubba_og_fluga__2009.jpg


 

 
Birna frá Brúnum
mánudagur, 01 mars 2010

Fyrir nokkru tókum við inn hana Birnu frá Brúnum. Birna er undan Flótta frá Borgarhóli og Lilju frá Æsustöðum og sýnir mikinn fótaburð undir sjálfri sér. Einar og Birna í Hólshúsum fengu þá hugdettu fyrir 4. árum að stofna ræktunarfélag um Lilju er Hólmgeir tók upp gæðastýringu og gat því ekki notað merina. Þau héldu henni einu sinni og fékk Einar folaldið en síðan kom Hólmgeir og náði í merina og var þá sennilega hættur í gæðastýringunni. Birna er afar meðfærileg og ljúf hryssa, auðtamin og fljót að læra og set ég hér inn myndir af henni.

birna_flottadottir.jpgbirna_fra_brunum.jpgimage003.jpg


 

 
Bætist við í hópinn
laugardagur, 27 febrúar 2010

Um helgina eignuðumst við þessar hryssur en þær heita Pálína frá Akureyri og Þræta frá Syðri-Hofdölum. Pálína er fylfull eftir Sigur frá Hólabaki og Þræta eftir Hreggvið frá Feti en hann er albróðir Lúðvíks og Árna Geirs frá Feti.

Einar og Guðbjörg stunduðu útreiðar grimmt í dag en færið er erfitt vegna snjóa. Guðbjörg fór m.a. á Flótta gamla frá Borgarhóli og er það fyrsti túrinn hennar með honum en hann hefur ekkert verið hreyfður í næstum tvö ár. Hún var yfir sig hrifin og virðist hann alltaf vera jafn sperrtur og getumikill en ekki má gleyma því að hann fékk 9.0 fyrir brokk, tölt og vilja og 8.62 fyrir hæfileika og ekki allar ungar dömur sem hafa aðgang að slíkum hestum.

rta_fr_syri_hofdlum_2.jpgrta_fr_syri_hofdlum.jpgpalina.jpgpalina1.jpgflotti2.jpgflotti_maeldist_a_55_km_hrada_a_tolti.jpg


 

 
Vetur á ný
þriðjudagur, 23 febrúar 2010

Þá er vetur konungur farinn að sýna klærnar á ný með mikilli úrkomu og frosti og hefur það í för með sér að útreiðar hafa verið með minnsta móti sl. daga. Einar og Guðbjörg fóru þó á sunnudaginn en voru köld og hrakin þegar heim var komið.

Við skelltum okkur til Reykjavíkur og nágrennis í síðustu viku og fórum með vinum okkar þeim Bjössa og Ester í Hólakoti. Við fórum og skoðuðum Hólaborg hjá IB. karlinum og þar var margur gæðingurinn í þjálfun og uppbyggingu. Feykilega flott aðstaða og vel tekið á móti okkur. Einnig kíktum við í Langholt og sáum þá Kvist og Kompás frá Skagaströnd en þeir eru þar í þjálfun. Kvistur verður hjá okkur í sumar eins og komið hefur fram áður og Kompás var sl. sumar. Síðan fórum við og sáum Hóf frá Varmalæk hjá Sigurði Sigurðarsyni og var það mjög skemmtileg heimsókn. Við renndum við í Feti og vorum leidd þar um og sannfærðist ég þá um það að halda Birtu minni undir Vilmund frá Feti eins og við höfðum stefnt að. Við enduðum svo daginn í Fjöruborðinu á Stokkseyri og borðuðum þar dýrindis humar, frábær staður.

Á föstudaginn var kíkt í hesthúsið hjá honum Sveini Inga Grímssyni eiganda Kvists og var okkur vel tekið eins við mátti búast. Þar var einn og einn gullmolinn sem á örugglega eftir sanna sig seinna meir. Þann dag komum við einnig við í Eyri og sáum Glym frá Innri-Skeljabrekku en Finnur lagði á gæðinginn sem sýndi og sannaði að honum er margt til lista lagt.

Við enduðum svo ferðina í sumarbústað í Borgarfirðinum og áttum þar góðar stundir.

vatnsjalfun1.jpgkvistur.jpgglymur_1010.jpgkvistur3.jpg


 

 
Enn ein helgin liðin
sunnudagur, 14 febrúar 2010

Við höfum komið ótrúlega mörgu í verk þessa helgina. Eftir vinnu á föstudaginn fórum við gangandi í Grýtu og náðum í Brák og teymdum hana heim. Brák er undan Penna frá Kirkjubæ og Júlíu frá Litla-Dal, hún er vel á sig komin en Einar járnaði hana á laugardaginn og skellti sér á reiðtúr og komst að því að hún hafði engu gelymt. Okkur langar til að sýna hana í vor og fer hún því í þjálfun fram á vorið. Laugardagurinn fór í tamningar og var Guðbjörg með pabba sínum í því en Þórhildur dansar þá daga. Hann á fola undan Hæru hans Bjössa vinar síns og Kormáki sem hann er afar ánægður með og er að byrja á honum þessa dagana. Í morgun tókum við daginn snemma og fórum á göngu en náðum síðan í Birnu frá Brúnum en það er meri á 4 vetur undan Flótta og Lilju (Ómsdóttir) frá Æsustöðum. Hún hefur alltaf sýnt mjög fallegar hreyfingar sú meri og er afar ljúf og teymist eins og ekkert sé þó hún hafi varla verið snert áður. Það á sem sé að byrja á henni líka svo nóg verður að gera hér á Brúnum á næstunni. Við hittum vini okkar og vandamenn og horfðum á stelpurnar okkar á leiksýningu í skólanum sem var framúrskarandi skemmtileg.

Set hér inn myndir af Ragnari Elíasi (skírður eftir þeim heiðurshjónum Ragga og Eddu í Hól) og Brák. Ragnar Elías er reiðhesturinn hennar Guðbjargar og er hún með hann á knapamerkjanámskeiðinu. Hann er mikill töltari (og töffari) en hún nær honum þó á brokkið og hefur á honum mikið dálæti, geðgóður og ljúfur. Hann er undan Flótta og meri frá Eddu og Ragga í Hól.

ragnar_elias.jpgbrk.jpg


 

 
Íslenskir hestar í Ameríku
fimmtudagur, 11 febrúar 2010

Við höfum búið við óhemju veðursæld undanfarið og fólk hefur getað stundað útreiðar mestallann janúarmánuð og ekki hefur febrúar verið síðri. Meðan svona viðrar hér þá hafa vinir okkar í Danmörku og Noregi búið við mikinn kulda. Á austurströnd Bandaríkjanna hefur ekki snjóað annað eins í um 100 ár og fengum við sendar myndir frá þeim Hákoni og Maríu þar sem íslensku hestarnir þeirra vaða snjóinn þessa dagana. Set hér að gamni myndir af þeim í fallegu vetrarveðri.

vetur_hj_maju_og_hkoni.jpg snjor_2.jpg


 

 

 
Tamningar
miðvikudagur, 10 febrúar 2010

Tamningar ganga vel bæði heima og heiman. Linu gengur vel með Eik og fórum við í síðustu viku og horfðum á hana í Léttishöllinni og fer hún mjög vel af stað. Lýsu- og Vængsdóttirin Dreyra er einnig á Grund svo og Dósents- og Þokudóttirin hún Vaka. Rikki Hafdal er síðan með Kormáks- og Silfurtádóttirina hana Gerplu. Einar er síðan komin með 5. hross á járn og nýtir nýja reiðveginn út í ystu æsar og er Guðbjörg dugleg að fara með honum þegar hún hefur tíma. Bjössi er síðan með Ösp og er hún á góðri leið og einnig hann Ölur sem Biggi Árna er að sinna af natni. Næstu daga ætlum við að ná í Birnu en það er hryssa á 4. vetur undan Flótta og Lilju frá Æsustöðum en sú meri sýnir mikinn fótaburð.

Stelpurnar eru að æfa undir árshátið Hrafnagilsskóla og er Þórhildur að dansa í söngleiknum "Grease" og er Guðbjörg kynnir svo mikið hefur verið að gera í þeim undirbúningi.

Set hér inn myndir af Eik sem teknar voru í Léttishöllinni.

eik_.jpgmv5bmti3mdk2nza0mf5bml5banbnxkftztywndm2oti2._v1._cr00280280_ss90_.jpg


 

 
Landsmót
laugardagur, 06 febrúar 2010

Hvar skal halda Landsmót 2012?

Nú birtast okkur greinar og álit á því hvar landsmót hestamanna skuli haldin og sitt sýnist hverjum. Hæst hafa þeir er ekki vilja breyta þeirri sjálfsögðu hefð að halda þau aðeins á tveim stöðum á landinu þ.e.a.s á Gaddstaðaflötum og Vindheimamelum og láta þar að leiðandi þessa tvo staði njóta þess að fá þá fjármuni og uppbyggingu er fylgir því að halda landsmót. Sjálfur fór ég á landsmótið í Reykjavík 2000 og líkaði vel þó svo að ég missti af þeim útihátíðafíling sem þeim á Hellu tókst að skapa nú á síðasta landsmóti er haldið var þar. Þar á ég við umferðarteppur, vatnslausa kamra og gæslulaus tjaldsvæði sem fylltust af djammandi fólki  og unglingum er lét sér dagskrá mótsins lítið varða enda var nóttin þeirra tími rétt eins og í Atlavík forðum nema þar var gæsla. Margir kenndu nálægðinni við borgina um þetta ástand en allavega var þetta ekki svona í sjálfri borginni á LM 2000. Það að ætla sér að einoka staðarval LM og þá fjármuni og ferðamannastraum sem því fylgir er ósvífið og ekki í anda LH þar sem markmiðið er að byggja upp aðstöðu og öflugt starf hestamennsku á sem flestum stöðum á landinu. Ef þau félög sem stóðu að síðasta LM á Gaddstaðaflötum eiga í fjárhagsvanda þá verður hann ekki leystur á kostnað annara staða á landinu sem eru fullfærir um að halda landsmót og gera það vel. Forkólfar á suðurlandi geysast fram á ritvöllin hlaðnir rökum um að Reykjavík sé óhæfur landsmótsstaður og sumir eru svo hrokafullir að segja að þeir láti ekki bjóða sér þetta. Þeir gleyma því að landsmót eru ekki sjálfsögð eign þeirra sem öðrum kemur ekki við. Öll þessi rök eru tilbúin af þeim er hagnast á því að halda landsmót í sinni heimabyggð og vilja því ekki missa spón úr aski sínum með því að leyfa öðrum stöðum að komast að. Rök eins og dýravelferð, hesthúspláss og flutningskostnaður eru tínd til, dýravelferð, takið eftir, hver gleymir ekki flugeldatertunum sem voru sprengdar innan um menn og skepnur á Hellu og er ekki sanngjart að Reykvíkingar fái af og til að njóta lægri flutninga fyrir hross sín rétt eins og sunnlendingar þegar mótið er á Hellu. Þó tekur steinin úr þegar menn eru farnir að kvarta yfir því að geta ekki sungið í góðra vina hópi í Víðidalnum og nota það sem rök fyrir vali á Landsmótsstað. Að halda því fram að ekki megi halda landsmót á heimavelli fjölmennasta hestamannafélags landsins er í raun óskiljanleg eigingirni þeirra félaga er staðið hafa að landsmótshaldi á Gaddstaðaflötum og Vindheimamelum, þeir hanga eins og hundar á roði á því að fá að einoka stærsta viðburð hestamennsku í landinu um ókomna framtíð og bera fyrir sig þau rök að ekki borgi sig að leggja í þann kostnað að gera fleiri svæði hæf til að koma að landsmótshaldi. Þá gleymist gjarnan að nú þegar eru 4 staðir hæfir þó allir þeirra þurfi viðhald og nýir tímar kalli á framþróun. Hverjum dytti það í hug að binda Landsmót UMFÍ við sama staðinn? Allir staðir hafa sína kosti og galla og um leið sinn sjarma, það ber að virða og koma að þessu staðarvali á félagslegum grunni en ekki út frá hagsmunum einstakra hópa eða félaga.

Að lokum vil ég hvetja alla þá er málið varðar að hræðast ekki breytingar því landsmót í Reykjavík er góður kostur sem ekki er hægt að sniðganga um ókomna framtíð

Einar Gíslason

Brúnum Eyjafjarðarsveit


 

 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 41 - 50 af 144