Þorrablót
föstudagur, 29 janúar 2010

Um helgina verður þorrablót Eyjafjarðarsveitar og er orðið uppselt, við reynum alltaf að fara á þessi þorrablót innansveitar og höfum skemmt okkur vel og er nauðsynlegt að sýna sig og sjá aðra. Það bættist við nýr fjölskyldumeðlimur í vikunni en það er hvít læða sem heitir Litli-Brandur svo frumlegt sem það er. Hún á að eiga heima í hesthúsinu og borða mýs svo Brandur okkar sem er 11. ára fær enn að vera prinsinn á bænum.

Í kvöld er Þórhildur að keppa á Samfés en grúbban sem hún er í vann keppnina hér í Hrafnagilsskóla og vann sér rétt í undankeppnina í Sjallanum í kvöld og svo er að sjá. Börkur hennar Villu frænku er að keppa í Wipeout í kvöld og er að standa sig frábærlega, kominn í úrslit svo það er nóg að gera hjá fjölskyldunni.

Einar er búinn að járna þrjú hross og tvö þeirra tók hann inn um síðustu helgi og höfðu þau aldrei verið snert en mjög fljót til og teymdust strax svo nú er bara að hella sér út í tamningarnar. Set inn gamlar myndir sem mér finnst skemmtilegar og rifja upp góðar minningar.

solstodufjallganga.jpg20_ara_studentar_2007.jpgspariklubburinn.jpg


 

 
Góðar undirtektir
sunnudagur, 24 janúar 2010

Góðar undirtektir eru við komu Kvists frá Skagaströnd og bjuggumst við ekki við öðru. Gaman verður að sjá hann á landsmótinu í sumar og ekki verður síðra ef bróðir hans hann Kompás verði þar líka en það á eftir að koma í ljós. Við fórum á folaldasýningu á laugardaginn niður á Akureyri og var það mjög gaman, mörg falleg folöld og ekki síðri ungfolarnir. Í dag byrjuðum við gömlu hjónin daginn með góðum göngutúr og fórum síðan upp í Ytra-Dalsgerði en þar áttu þau Hákon og María unga hryssu. Hún er gæf og var auðvelt að ná henni og eftir ormalyfjagjöf fór hún í stóðið á Grýtu. Einnig náðum við í hryssu sem við áttum á Munkaþverá en hún er undan Þoku og Dósent. Einar lagði svo við hana múl og fékk að lyfta fótum þannig að hún er fljót til.

Stelpurnar voru að vinna alla helgina hjá Gyðu frænku sinni í Benetton og Levi's og fannst það mikið sport og voru alsælar með helgina.

kompas_og_gudbjorg.jpgkvistur_brokk.jpgbubba_me_design_gleraugu.jpgdesign_gleraugu_i_usa.jpg


 

 
Kvistur frá Skagaströnd
mánudagur, 18 janúar 2010

 

 

Kvistur frá Skagaströnd

 

Þá er það frágengið að hann Kvistur frá Skagaströnd verði hér hjá okkur í sumar og mun koma hingað strax eftir landsmót. Okkur hefur lengi langað til að halda undir kappann og erum alsæl með að fá hann hingað.  Í fyrrasumar höfðum við bróður hans, Kompás frá Skagaströnd en þeir eru báðir undan gæðingamóðurinni Sunnu frá Akranesi en nánari upplýsingar um þá ræktun alla er á www.sunnukvistir.is.  Kvistur náði þeim frábæra áfanga að fá 9.0 fyrir tölt, brokk, skeið og vilja.  Þetta er mikill höfðing með 8.26 fyrir byggingu og 8.79 fyrir hæfileika og er undan Hróð frá Refstað sem fékk heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á síðasta landsmóti.

Folatollurinn er kr.145.000 og innifalið í því er hagagjald, virðisaukaskattur og ein sónarskoðun. Við tökum niður pantanir í símum 4627288 og 8631470 og í póstfangið This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it Hér koma myndir af þessum mikla gæðingi og af einu brúnblesóttu undan honum.

kvistur_3.jpgkvistur.jpgafkvmi_kvists.jpg


 

 
Janúar
miðvikudagur, 13 janúar 2010

Nýja árið leggst vel í okkur, Guðbjörg er byrjuð í knapamerkinu og Einar járnaði Ragnar Elías sem hún verður með  á því námskeiði. Þórhildur dansar og spilar svo ferðirnar á Akureyri verða margar í hverri viku á næstu vikum og mánuðum.  Við tókum Stássu gömlu heim og stendur hún núna í rúllu með Sveins-Hervarssoninn hann Djákna. Hún hefur sig lítið í frammi og virðist vera neðarlega í goggunarröðinni svo gott er fyrir hana að þurfa ekki að standa í neinu ströggli við önnur hross.

Verið er að ganga frá samningi um annan stóðhest sem yrði hérna næsta sumar en við munum birta nafnið á honum innan tíðar.

Ég set hér inn mynd af henni Sóldögg minni sem Jóna á Bringu tók af henni á folaldasýningunni, hún er orðin það ljós á henni blesan að hún er hætt að sjást og hlakka ég til að sjá hvernig hún á eftir að líta út í sumar.

soldogg_lysu-_og_tokkadottir5.jpglitid_til_sudurs.jpglistaverk_eftir_daeturnar_baedi_ny_og_gomul.jpg


 

 
Folaldasýningu lokið
laugardagur, 09 janúar 2010

Undanfarna daga höfum við verið í miklum hestaflutningum vítt og breitt. Hross hafa farið frá okkur sem við höfum haft í fóstri í nokkurn tíma, Bjarkar fór í Hólakot og við tókum 4. folöld og fórum með á folaldasýningu hjá hrossaræktarfélaginu Náttfara.  Ekki var auðvelt að nálgast þau í Grýtu vegna snjóa en með hjálp frá góðu fólki þá tókst það. Jón Elvar bróðir kom, sá og sigrði en hann átti 2. efstu hryssurnar í þeim flokki og fola númer 3. í flokki hestfolalda og síðan var sá foli kosinn glæsilegasta folaldið. Einhver fleiri verðlaun fékk hann og er þetta frábær árangur. Við fengum að þessu sinni engin verðlaun en við fórum með 4. merar í hryssuflokkinn en við unnum ungfolaflokkinn í fyrra í lokakeppninni hjá ræktunarsamböndunum. Set hér inn myndir af folanum hans Jóns honum Hring með móður sinni, gæðingshryssunni Söru frá Víðinesi og Fálka okkar sem vann í fyrra. Við óskum öllum vinningshöfum til hamingju og þeim sem að sýningunni stóðu fyrr vel heppnaða sýningu og held ég að á engan sé hallað að nefna Ester í Hólakoti í því sambandi.

sara_og_hringur.jpgfalki_6.jpgvinningshafa_bjossi_og_jon.jpggamli_med_blomarosunum.jpg


 

 
Gleðilegt nýtt ár!
föstudagur, 01 janúar 2010

Við óskum ykkur öllum góðs og gleðilegs árs og þökkum fyrir liðið ár. Við hvetjum alla til þess að hafa bjartsýnina að leiðarljósi inn í nýtt ár.

Bestu kveðjur frá Brúnafjölskyldunni.

sigurros_forsetadottir.jpg osp_dosents-_og_bjarkardottir.jpgbubbi_gerplu-og_illingssonur.jpgfogur_er_fjallasynin.jpgvinkonurnar.jpg


 

 

 

 

 
Árið brátt á enda!
miðvikudagur, 30 desember 2009

Og enn snjóar, afar jólalegt en alveg komið nóg. Ég tók nokkrar myndir í myrkrinu í kvöld og segja fróðir menn að ekki hafi komið önnur eins úrkoma sl. 14 ár. Í dag kom Þóra systir með dætur sínar og barnabarn og mamma og var verulega gaman að fá þær. Í kvöld fengum við svo marga góða gesti og var mikið rætt um hross eins og títt er á þessum bæ. Á morgun ætlum við að fara í Grýtu og taka myndir af stóðinu og athuga hvernig þau hafa það en ætlunin er að taka 2. hryssur og fara með í tamningu á Grund. Þá er Bjarkar seldur og fer senn í Hólakot í frekari tamningu og síðan til sinna nýju heimkynna sem verða í Austurríki.

villa_og_briet.jpgdesember_2009_048.jpgjolasnjor.jpgjolastemming.jpgdesember_2009_047.jpgfraenkusvipur.jpg


 

 
Vetur konungur
laugardagur, 26 desember 2009

Síðustu daga hefur snjónum kingt niður og er allt að fara á bólakaf. Við búum svo vel að minn elskulegi bróðir Grettir er komin hér um leið og heldur öllu opnu fyrir okkur og þar sem ég er búin að vera í vinnu sl. 3. daga hefur ekki veitt af því. Í gær hittist stórfjölskyldan á Laugalandi og í dag í Klettagerðinni hjá Össa og Dillu og svo erum við systur til skiptis hjá hver annari á gamlárskvöld og verðum við á Stafni í ár en Þóra verður 50. ára þann dag og verður mikil gleði á bænum eftir miðnætt. Einar hefur ekki komist í Grýtu sl. daga en Grettir ætlar að opna þá leið á morgun svo hægt verði að gefa hrossunum. Síðustu dagar hafa verið mjög notalegir og gott að geta verið innandyra í birtu og yl og hafa Einar og stelpurnar verið að púsla 1000 kubba púsli og er að koma mynd á það. Eftir morgundaginn er ég komin í nokkura daga frí og þá ætlum við að bjóða til okkar fólki og hafa gaman.

ak_frostnott_feb2005.jpgmamma_og_thora_sys.jpg


 

 
Gleðileg jól
föstudagur, 25 desember 2009
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og hamingju á nýju ári.
Þökkum allar heimsóknirnar á síðuna!
 
Einar, Hugrún, Þórhildur og Guðbjörg.

 
 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 51 - 60 af 144