|
föstudagur, 11 desember 2009 |
|
Þá styttist í jólin og við erum óvenju róleg í öllum undirbúningi og erum bara að njóta þess sem aðventan hefur upp á að bjóða. Ætlum að gera laufabrauð um helgina og flandera með hesta. Við fórum og skoðuðum hana Eik í vikunni og er Line farin að ríða á henni um allt, frábær tamning á einungis mánuði og ætlum við að gefa henni frí í 1. mánuð nú um jólin. Það fer vel á stað með Glym og er búið að panta pláss fyrir 16. hryssur hjá honum.
Núna standa sauðfjársæðingar sem hæst og er búið að sæða tvisvar, vonandi gengur þetta vel og það verði fyrirhafnarinnar virði.
Set hér inn myndir af dansaranum henni Þórhildi en við horfðum á hana dansa í gær og gerði hún það vel eins og allt sem hún gerir.
 
|
|
|
|
|
mánudagur, 30 nóvember 2009 |
|
Það er helst í fréttum að Einar, Jón Elvar og Rósberg gengu upp í Hrafnagilsfjallið í gær og ráku restina að stóðinu heim sem ekki skilaði sér á haustdögum en við áttum nokkur tryppi þarna. Einar tók með sé byssuna en rakst ekki á neina rjúpu en þar sem fjölskyldan sættir sig ekki við neitt annað í jólamatinn en rúpur þá getur hann ekki látið þar við sitja. Við fórum síðan í Grund og hann negldi undir hana Eik Flóttadóttir sem stóð eins og dæmd í járningunni en við Gunni sátum í betri stofunni.
Það hafa staðið yfir þreyfingar í stóðhestamálunum undanfarið og fer það vonandi að skýrast hvaða stóðhestur/hestar verða hér næsta sumar en það ætti nú að koma í ljós fljótlega. Framundan er tónleikahald hjá Þórhildi og danssýning í næstu viku og síðan prófavika en þær systur fara síðan í jólafrí 18. des. Ég fer í vinnuferð til RVK á fimmtudaginn og ætlum við Guðrún vinkona mín síðan að eyða föstudeginum í búðarráp.
Hér koma myndir af henni Eik sl. vetur og svo í vor.

|
|
|
mánudagur, 23 nóvember 2009 |
|
Þá er nóvembermánuður brátt á enda og margt hefur á dagana drifið
undanfarið. Við fórum og litum á Eik en tamningin hjá tamningamönnunum á
Grund gengur vel og er verið að gera góða hluti á þeim bænum. Bjössi í
Hólakoti varð síðan 50. ára sl. laugardag og að sjálfsögðu drifum við
okkur í þá veislu sem lukkaðist sérdeilis vel. Einar stjórnaði
veislunni ásamt systur Esterar og skemmtum við okkur konunglega. Hákon
vinur þeirra ætlaði að vera viðstaddur en komst ekki vegna
niðurfellingar á flugi frá Florída til New York og kom ekki til Íslands
fyrr en á sunnudagsmorgun. En María var hér og kom með okkur í
afmælið. Á morgun ætla þeir félagar að fara hrossarúnt og lita á
stóðið í Grýtu ásamt öðru. Flótti gamli er komin heim en hann var í
merum í Kjarna í sumar. Þetta verður trúlega síðasta sumarið sem hann
er í merum en illa er farið að halda við honum og á hann skilið að fara
að hvíla sig. Búið er að rýja allar kindurnar en Arnar í Brimnesi kom
fyrir rúmri vikur og var ekki lengi að skúbba af þeim. Búið er að
taka svampana úr hópnum og Einar les hrútaskrána nú sem aldrei fyrr.
Set hér inn mynd af Flótta gamla og Einari og þeim félögum í gamalkunni stellingu að horfa á ameríska boltann.

|
|
|
sunnudagur, 15 nóvember 2009 |
|
Þá er þessi helgi á enda. Vetur konungur minnir aðeins á sig með slyddu él og er alveg dæmalaust hvað við eigum mörg orð yfir mismunandi veðrabrigði. Slyddu getum við líka kallað kraparigningu og bleytukafald svo eitthvað sé nefnt. Við réðumst nú í, þrátt fyrir veðrið, að koma niður öspum meðfram heimreiðinni og vonandi verða þær fallegar næsta vor. Laugardagurinn fór í jólaföndur og nutum við mæðgur góðs að listrænum hæfileikum mágkvenna minna og þeirra dætra en við sátum alls í 12. klst í Hafnarstræti 9. og erum afar ánægðar með afraksturinn. Einar hafði öðrum hnöppum að hneppa og hitti m.a. Baldvin Ara sem ætlar að taka Illingssoninn hann Bjarkar og skoða hann fyrir okkur. Sunnudagurinn fór í rólegheit hér heima, ritgerðasmíði hjá dætrunum og móttöku gesta svo eitthvað sé nefnt.
Í vikunni lögðum við land undir fót og fórum með kjöt í reyk í Aðaldalinn en Einar er alveg viss í sinni sök um að enginn hér í Eyjafirði geti reykt kjöt eins og Bensi á Hólmavaði en það gerir hann lista vel enda 3.-4. ættliðurinn á þeim bænum sem sinnir þessu starfi. Tengdaforeldrar mínir voru mikið veiðifólk og hvort sem þau voru í veiði í Aðaldalnum eða annars staðar þá fór allur þeirra lax sem átti að fara í reyk í Hólmavað. Við höfum gert þetta undanfarin ár og Bensi svíkur engan.

|
|
|
þriðjudagur, 10 nóvember 2009 |
|
Tíminn líður og finnst manni ótrúlega stutt til jóla. Helgin var skemmtileg og hittum við marga og fórum víða. Á laugardagsmorguninn gengum við um Grýtulendur og rákum öll hrossin í nýjan haga sem er óbeittur frá því í vor. Þetta gekk ekki snuðrulaust og náðu þau að hlaupa upp á veg og vorum við sveitt, móð og másandi eftir þennan eltingaleik sem gekk þó vel að lokum. Tamningar ganga vel á þessum hrossum sem við sendum frá okkur en tímaleysi hamlar Einari í sinni vinnu en það fer að hægjast um á næstu dögum og þá getur hann einhent sér í þá vinnu. Einmuna blíða hefur verið undanfarið og gerir það að verkum að hægt er að sinna hinum ýmsu störfum útivið sem annars er ekki hægt að sinna. Ragnar Elías er kominn á hús og mun þá Guðgjörg Einarsdóttir fara að ríða á honum en hún hefur hugsað sér að fara með hann á námskeið í vetur.
 
|
|
|
mánudagur, 02 nóvember 2009 |
|
Þá eru 2. hross farin frá okkur í tamningu. Í gær fórum við með Rökkvasoninn okkar hann Öl í tamningu til Birgis Árnasonar. Hann hefur stækkað og þroskast mikið í sumar og ætlar Birgir að temja hann áfram fyrir okkur. Hann fékk 7.97 í byggingardóm í vor þá 4. vetra og er það okkar skoðun að hann hafi ekki verið of dæmdur og eigi meira inni nú með auknum þroska. Birgir þjálfaði og sýndi fyrir okkur Birtu (8.16) í vor og höfum við góða reynslu af honum.
Í dag fórum við svo með Flótta- og Bjarkardótturina hana Eik í tamningu á Grund til hennar Line Erikson. Eik er á 5. vetur og sýnir miklar hreyfingar og það gerði hún einnig í dag á Grund. Eik er alsystir Vængs sem nú er í Danmörku. Vonandi gengur vel með hana og verður spennandi að sjá útkomuna.
Set hér inn mynd af Eik sem tekin var í stóðinu í fyrravetur og svo í lónseringu hjá Einari nú í vor og af Væng albróður hennar.
 
|
|
|
föstudagur, 30 október 2009 |
|
"Forseti frá Vorsabæ hefur styrkt stöðu sína sem kynbótahestur. Allmörg
ný afkvæmi undan honum hafa komið til dóms á árinu og nokkur fengið
góðar einkunnir. Hann á 221 afkvæmi skráð í WorldFeng og þar af hafa
tuttugu og fjögur mætt til dóms, sem að vísu er ekki mikill fjöldi hjá
13 vetra stóðhesti. Fjórtán eru með fyrstu verðlaun. Hæst dæmda
afkvæmið er Hilda frá Bjarnarhöfn með 8,54 í aðaleinkunn".
Þessi frétt er í nýja Hestar og menn blaðinu og þar kemur einnig fram
að Markús frá Langholtsparti banki á Sleipnisbikarinn á landsmótinu í
sumar. Við eigum 4. tryppi undan Forseta á 3. vetur og erum við
einstaklega ánægð með þau. Þetta eru merarnar Bríet og Sigurrós og
folarnir Sálmur og Hryggur. Elfa sónarskoðaði 6. merar undan Markúsi í
dag og eru Njála og Björk báðar fylfullar og einnig Stássa þeirra
Hákonar og Maríu. Það gladdi okkur mjög að fá þessar merar staðfestar
með fyli en Briðja sem fór undir Frosta frá Efri-Rauðalæk er geld.
Við gáfum svo stóðinu ormalyf og snyrtum hófa og settum svo folaldsmerarnar í sér hólf svo mikið er búið þegar það er frá.
Við setjum hér inn myndir af þeim forsetasystrum.
 
|
|
|
miðvikudagur, 28 október 2009 |
|
Þá er Kompás farinn til síns heima en Sveinni Ingi og hans frú komu hér í gær og náðu í töffarann. Hann er á leið til Erlings Erlingssonar i tamningu en hann hefur mikið verið með hans systkini s.s Kvist ásamt fleirum. Við eigum von á 5. folöldum undan honum næsta vor og verður gaman að sjá hvernig tamningin gengur.
Á morgun kemur Elfa og sónarskoðar þær merar sem eftir er að skoða en þær voru hjá Markúsi og þá ætlum við í leiðinni að gefa ormalyf, snyrta hófa og setja folaldsmerarnar í hólfið sem Kompás var í.
Í gær fórum við í Hrafnagilsskóla og spiluðum félagsvist ásamt bekkjarfélögum dætranna og þeirra foreldrum, þetta var mjög gaman og nauðsynlegt fyrir krakkana að kunna að spila vist. Svo er árshátíð hjá FSA um helgina og ætlum við að sjálfsögðu að drífa okkur.

|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 61 - 70 af 144 |