Miđvikudagur
miđvikudagur, 21 október 2009

Hér eru allir að hressast og lífið að komast í fastar skorður.  Við Einar gengum um Grýtu hólfin í dag og skoðuðum hrossin. Kompás er hér enn og er alltaf gaman að heimsækja hann en hann er í góðu yfirlæti í ytra-hólfinu í Grýtu með 2. merar hjá sér.  Þau komast í skjól við skóginn og þegar hann verður var við mannaferðir kemur hann skokkandi með miklu fasi og fótalyftum. Eins og mörgum er kunnugt á hann mörg fræg og hátt dæmd systkini og svo er að sjá hvað hann gerir sjálfur í framtíðinni. Við keyrðum með hey til Dalvíkur í gær en Guðrún systir hans Einars er búin að fá sér kindur og voru þær fluttar ásamt heyinu til Grímseyjar í dag.  Hún er með sömu dýragenin og Einar og Inga en Örn virðist hafa sloppið við þau.  Guðrún keypti gimbrarnar á Presthólum í Öxarfirði en þau systkini fóru þangað fyrir skömmu og versluðu sér bæði fé, við 2. gimbrar og 1. hrút og hún 20. ásamt hrútum. Við keyptum okkar kindur á Bjarnastöðum þar sem gerðin er í hæðstu hæðum.

Við tókum inn öll veturgömlu tryppin og er verið að spekja þau og venja þau við manninn. Þau eru mjög mismunandi og misfljót að læra en allt hefst þetta á endanum.  Folarnir fara svo í hólf hjá Jóni Elvari bróður. Ölur fer svo trúlega um mánaðarmótin í tamningu til Birgirs Árnasonar á Akureyri og verður gaman að sjá hvernig hann verður.  Jóna og Sverrir eiga fola undan honum og Sölku sem fæddist nú í sumar og eru afar ánægð með hann, set inn myndir af honum síðar. Hér koma myndir frá sl.vori og frá New York 2007

hjalparhellan_hans_pabba.jpgforustan_me_hrutana_sina.jpgsvo_eru_til_kaninuungar.jpg museum_of_modern_art_moma.jpg.

andy_warhol.jpgwarhol-andy-shot-orange-marilyn-2107129.jpg


 

Nánar...
 
Flensufaraldur
fimmtudagur, 15 október 2009

Það hefur fátt á daga okkar drifið undanfarið, stelpurnar liggja hér í flensu sem er trúlega svínaflensan títtnefnda og eru búnar að vera mikið lasnar alla þessa viku. Seinnipartinn í dag fórum við í hrossastúss en þá voru hestarnir okkar fluttir úr Hrafnagilsfjallinu í Grýtu.  Það var gaman að sjá hvað þau hafa þroskast í sumar og eru vel á sig komin. Forsetadæturnar eru mjög gæfar og koma strax til manns og eru það einkenni á afkvæmum Forseta hve geðgóð og mannelsk þau eru. Við fórum síðan með Jóni Elvari bróðir með 7. hryssur frá honum í tamningu á Grund en þar verður tamningastöð í vetur.

Í vikunni fórum við í Villingadal og náðum í Öl en hann er búinn að vera þar í nokkrum merum í allt sumar og kemur feitur og pattaralegur þaðan. Við þurftum að ganga spölkorn inn í dalinn til að nálgast folann í dýrðlegu haustveðri en gleymdum því miður myndavélinni en áttum mynd af honum síðan í fyrrahaust á 4. vetur.

Einar er að leggja lokahönd á fjárhúsgólfið og verður því vonandi lokið um helgina svo hægt verði að snúa sér að öðru en ég vinn næturvaktir á gjörgæslunni um helgina og verður trúlega nóg að gera.  Hér koma myndir af Evu frænku minni sem er þessa stundina í Danmörku í námi og síðan eldri myndir, misgamlar.

 

 

 

eva_fraenka.jpgtota_a_uglu_sinni_27.07.05_014.jpgmamma_og_thora_sys.jpgnew-york_girl.jpgolur_fra_brunum.jpg


 

 
Valkyrja mćtt
miđvikudagur, 07 október 2009

Um síðustu helgi voru hrossaréttir og þar sem nær öll okkar hross eru annaðhvort í Grýtu eða í Hrafnagilsfjallinu þá áttum við ekki nema 2. merar í Staðarbyggðafjallinu en þær struku þangað í vor. Önnur þeirra skilaði sér en Dósents- og Þokudóttirin Vaka kom ekki en svipuð meri gekk ekki út á Þverárrétt og hefur okkar trúlega verið tekin í misgripum en hún er örmerkt og skráð og auglýsum við því eftir henni. 

Fyrir 2. árum lögðum við land undir fót og fengum 2. forustugimbrar frá Grími í Klifshaga í Axarfirði sem er frægur fyrir ræktun sína á forustufé og voru þær skýrðar Skjaldmey og Valkyrja. Þær eignuðust svo sitthvort lambið um vorið en Valkyrjurlamb dó. Síðastliðið haust skilaði svo Skjaldmey sér ekki ásamt lambinu og vitum við ekki hvað varð um þær mæðgur.  Í haust skilaði svo Valkyrja sér ekki ásamt öðrum hrútnum sem hún eignaðist í vor en hinn kom úr Bleiksmýrardal.  Svo um helgina sást  til hennar þar sem hún skundaði niður Garðsárdalinn með hinn hrútinn og var á leiðinni heim. Orri á Garðsá lét okkur vita og við opnuðum fjallshliðið fyrir henni og hún skokkaði niður í Höskuldsstaði og var síðan flutt heim í kerruValkyrja er kvenkyns persóna úr norrænni goðafræði sem hafði það hlutverk að sækja fallna hermenn og koma þeim til Valhallar. Hér koma myndir af Valkyrju ásamt hrútunum sínum sem við ætlum að gera af sauðum og er búið að falast eftir öðrum þeirra.

kindur_haust_2009_019.jpgvalkyrja.jpgvalkyrja_2.jpgkindur_haust_2009_018.jpgkindur_haust_2009_020.jpgkutur_gyuson_kom_i_heimsokn.jpgkindur_haust_2009_023.jpg


 

 
Október
fimmtudagur, 01 október 2009

Fátt nýtt að frétta en frekar leiðinlegt að hafa alltaf sama frontinn á síðunni.  Bóndinn er í borginni og við mæðgur höfum það gott á meðan, kíktum í kaffi til Adda frænda og Gunnu eftir skólann og svo er það dansinn hjá Þórhildi í kvöld.  Hér var allt hvítt í morgun en allur snjór er farinn nú seinnipartinn, mér leiðist hálka og ófærð og vonandi verðum við laus við þannig veðurlag eitthvað áfram. Einar var að hjálpa Jónu og Sverri í Bringu við að ómskoða lömbin í gær og kom það mjög vel út á þeim bænum, við skiptumst á að aðstoða hvort annað hvað þetta varðar og er það mjög gott fyrir Einar að vera ekki einn í þessu, því við mæðgur erum ekki alltaf til taks þegar þarf.

Helgin mun fara í að ganga frá garðadóti, koma vélum, hjólum og áhöldum í hús og taka inn í gróðurhús þau blóm og rósir sem ekki þola veturinn.  Einnig fer ég með spariklúbbnum, sem er bráðskemmtilegur konuklúbbur sem ég er, í Aðaldalinn í sumarbústað það sem við munum skemmta okkur.  Þar verður Arna Jakobína en hún tilkynnti í dag framboð sitt til formanns B.S.R.B. og mun þá taka við af Ögmundi ef það nær fram að ganga, flott kona hún Jakobína.

Hér koma nostalgíumyndir frá sumrinu sem gaman er að skoða þegar kólna fer.

einar_og_komps.jpgmed_rambo__phylli.jpgbubba_og_hundarnir.jpgtota_og_dullan.jpg


 

 
vikulok
föstudagur, 25 september 2009

Þá er þessi vika á enda hjá flestum en ég á þó eftir að vinna í nótt.  Einar og Guðbjörg ætla í göngur á Þverárdalinn á morgun og þá er þessu gangnastússi lokið þar til hestunum verður smalað nú í október.  Veðrið hefur verið mjög fallegt og gott að njóta útiveru á þessum árstíma.  Húsbóndinn á heimilinu sést varla þar sem hann er öllum stundum eftir vinnu að setja nýtt gólf í fjárhúsin. Hann er þó að eiga við hross ásamt því og er með ein þrjú innandyra og fæst við þau jafnhliða. 

Þeim fækkar alltaf merunum í Grýtu og fóru 2. í gær.  Við höfðum hugsað okkur að keyra þá höfðingja suður um aðra helgi en þar sem Einar þarf að fara á fund í Reykjavík á fimmtudag og föstudag þá hentar það mér ekki svo einhver bið verður á því. Gott væri að vita ef einhver á erindi með tóma kerru á suðurlandið að nýta hana og við borgum að sjálfsögðu fargjaldið.

Hér koma myndir af þeim feðginum þar sem þau ganga á fjöll og firnindi í sl. viku.

kristnesskc3b3gur030.jpgc39ativistardagur_gc3b6nguferc3b0_bakkinn_22090934.jpg


 

 
September
mánudagur, 21 september 2009

Þá er kominn tími á eitthverjar fréttir. Seinni göngur eru búnar í Staðarbyggðafjalli og heimtum við 2. ær og 4. lömb en samt vantar okkur enn nokkrar skjátur.  Guðbjörg fór ríðandi á Ragnari Elíasi en Einar gekk.  Þórhildur komst ekki vegna dansæfinga og þótti það miður en ég var að vinna á gjörgæslunni og var fjarri góðu gamni.  Veðrið var yndislegt og allt gekk vel.

Þeim fækkar alltaf merunum sem voru á Grýtu og eru ekki að verða margar eftir hjá þeim Markúsi og Kompási en þeir félagar fara svo fljótlega til síns heima.  Við eigum því næsta sumar von á 2. folöldum undan Auði frá Lundum, 3. folöldum undan Kompási frá Skagaströnd, 1. undan Markúsi frá Langholtsparti, 1. undan Frosta frá Efri-Rauðalæk og 1. undan Fjarka frá Breiðholti.

Svo er bara að bíða og sjá hvað vorið ber í skauti sér en hér kemur bland í poka frá liðnu sumri!

bjork_og_olssonurinn.jpgvaengssynir.jpgeinar_og_audur.jpgbubba_og_birta.jpg


 

 

 
Dásamlegt haust
sunnudagur, 13 september 2009

Þetta er búin að vera skemmtileg helgi, mikið um að vera og veðrið hreint út sagt dásamlegt.  Á föstudaginn var sónarskoðað undan stóðhestunum Markúsi og Kompási.  Fyljunarhlutfall hjá Kompási var 100% en ekki er búið að skoða allar frá Markúsi og verður hann eitthvað áfram hér um sinn.  Birta mín fékk við Markúsi og var það nú aðal málið að hún fengi en Njála og Björk voru geldar frá honum og Ísbjörg og ein Höfðameri á okkar vegum fengu við Kompási.

Við fórum í 50. ára afmæli á laugardagskvöldið sem endaði svo líka í brúðkaupsveislu og var það sérdeilis skemmtileg veisla. Í morgun var frænkuboð hjá Þóru systir en Ragnhildur Vigfúsdóttir frænka okkar var hér stödd og áttum við góða stund þar en verið er að skipuleggja ættarmót á næsta ári þ.e. hjá föðurfólki mömmu.

Í dag fórum við svo í berjamó í Leyningshóla og tíndum einnig rifs-og sólber.  Haustlitirnir eru einstaklega fallegir og skörtuðu Leyningshólar sínu fegursta.  Við enduðum svo í kaffi hjá þeim heiðurshjónum Árna og Guðrúnu í Villingadal og tókum nokkrar myndir af Öl en hann er í nokkrum merum í Villingadal og hefur það með afbrigðum gott.

Nú ætla þau Einar og Guðbjörg að hella sér í þjálfun og tamningar og fór Guðbjörg í kvöld að stússast í hrossunum og Einar í fjárhúsgólfinu

lur_og_haust_2009_012.jpglur_og_haust_2009_009.jpglur_og_haust_2009_019.jpglur_og_haust_2009_027.jpglur_og_haust_2009_030.jpg


 

 
Sónarskođađ undan Markúsi
föstudagur, 11 september 2009

Elfa Ágústsdóttir dýralæknir sónarskoðar í dag kl.15:30 undan Markúsi frá Langholtsparti og þessar 3. merar sem ekki voru enn fengnar við Kompási frá Skagaströnd.  Hlutaðeigandi eru beðnir um að hafa samband og ná í sínar hryssur eftir samkomulagi. Nú eru sláturnótur að koma í hús og kemur þetta vel út, fáum m.a. 9.0 fyrir gerð og 1. lamb í E-flokk. En meir um það síðar.

 

markus.jpg


 

 
Fyrstu göngur búnar
miđvikudagur, 09 september 2009

Þá er 1. göngum lokið og heimtur voru góðar. Gengið var síðustu helgi í blíðskapar veðri og gekk allt vel hvað okkur varðar. Í gær mættu ráðunautarnir og stiguðu hópinn og hefur þetta aldrei komið eins vel út hjá okkur eins og nú. Gúrúinn í sauðfjárræktun á Íslandi hann Jón Viðar Jónmundsson mætti á staðinn og var ótrúlega snöggur að þessu ásamt öðrum ráðunaut, Sigurði Þ. Síðan fara um 80. lömb á sláturhúsið á morgun og eru það alltaf frekar erfiðar stundir.

Það hefur verið í mörgu að snúast sl. viku og tíminn þotið áfram, við fengum um 40. manns í kjötsúpuna á gangnadaginn og var mikið gaman. Við förum svo í 50. ára afmæli um helgina og ætlum við einnig að reyna að fá Elfu dýralækni til að sónarskoða undan Markúsi og þessar 3. sem eftir voru hjá Kompás en það kemur í ljós á morgun.  Hér kemur mynd af okkur hjónakornunum en í dag eigum við 20. ára brúðkaupsafmæli!

 

amerka_2_008.jpg.


 

 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 71 - 80 af 144