|
sunnudagur, 16 ágúst 2009 |
|
Nú erum við hjónin bæði komin í okkar vinnu aftur og lífið að komast í fastar skorður. Þar sem fjölskyldan er svo að fara í frí í næstu viku þá munu Sverrir og Jóna á Bringu hafa auga með Markúsi, Kompási og þerirra merum en Steinar frændi minn og hans kærasta ætla að búa í húsinu og passa Grímu og Brand. Ef einhverjar spurningar vakna í tengslum við hestana þá er hægt að tala við Jónu og Sverri. Einar og stelpurnar hafa verið dugleg að ríða út sl. daga og er hestakosturinn nægur. Stelpurnar ríða til skiptis á Flóttabörnunum Flugu og Ragnari Elíasi og einnig á Vind en hann er undan Báru frá Árgerði og Degi frá Höfða. Einar fer á Kára sér til ánægju og yndisauka en hann er mikill gæðingur og ekki vantar viljann á þeim bænum. Þau hafa farið í styttri ferðir og þá er aðal sportið að taka með sér nesti og stoppa einhversstaðar. Þær eru að verða mjög flinkar stelpurnar og áhuginn að aukast og er ætlunin að fara á knapamerkjanámskeið næsta vetur og einnig reiðnámskeið ef þau verða í boði.
Helgin hefur farið í að hreinsa hænsnakofann og laga hann til en einnig í garðvinnu og heimsóknir til ættingja og vina. Mér var bent á að síðan opnaðist ekki rétt á Internet Explorer en á Firefox nettengingunni kemur hún rétt upp en þá tengingu notum við.
  
|
|
|
|
|
fimmtudagur, 06 ágúst 2009 |
|
Þá er það ákveðið að sónarskoðað verður undan Kompási og Auði n.k. mánudag en þá verða liðnir 17. dagar frá því að Auður fór og ætti að vera útséð með hvort þessar 10. merar sem eftir voru eru með fyli. Sl. 3. dagar hafa verið yndislegir, hlýjir og næstum logn. Þrifum á útihúsunum eru að mestu lokið og er allt orðið glimrandi fínt en Ragnar okkar Elías er eina hrossið sem er inni en hann var geltur í vor og er ekki alveg að höndla að baunirnar eru farnar, endalaust að reka og flokka heimahrossin og var því ekki hægt að hafa hann með þeim. Vonandi eldist þetta fljótt af honum því hann verður trúlega reiðhestur stelpnanna og eru þær mjög hrifnar af honum. Mjúkur töltari með geðslag upp á 10 og sýndi það sig best þegar verið var að háþrýstiþvo í kringum hann í húsunum Hann er undan Flótta og meri frá Hóli sem er systir Öbbu frá Gili.
Mér finnst ágúst alltaf yndislegur tími, allt í blóma og farið að rökkva svo hægt er að kveikja á kertum, berjatíminn að byrja og svo koma haustlitirnir sem eru oft svo ótrúlega fallegir. Set inn myndir af hinu og þessu.

|
|
|
sunnudagur, 02 ágúst 2009 |
|
Veðrið ætlar ekki að leika við okkur norðlendinga þetta sumarið en undanfarnar vikur hafa að mestu einkennst af súld eða rigningu. Við höfum notað tímann sl. daga í tiltekt og er verið að háþrýstiþvo hesthúsið og fjárhúsið og er síðan ætlunin að skipta um gólf í fjárhúsinu en það er orðið hálf ónýtt. Það er helst að frétta að Orradóttirin Ísgerður er farin undir Kompás og Flótta- og Hrafnhettudóttirin Bryðja fór til Frosta frá Efri-Rauðalæk. Við erum með 3. merar hjá Markúsi og 3. hjá Kompási og tvær voru hjá Auði, svo von verður á óvenju mörgum folöldum næsta vor ef allt gengur upp.
Við gengum niður í hólfið hjá Kompási í morgun og var gaman að sjá Sóldögg Lýsu-og Þokkasóttur kúra makindarlega hjá móður sinni. Kompás kom og vildi láta klappa sér en ætlunin er að sónarskoða undan honum eftir rúma viku þegar restin af Auðsmerunum verða skoðaðar aftur. Kompás fer síðan suður í tamningu í haust.

|
| |
|
|
föstudagur, 24 júlí 2009 |
|
Þá er búið að sónarskoða undan Auði frá Lundum og koma það mjög vel út eða 21. hryssa með fyli af 31. og af þessum tíu voru margar mjög líklegar svo það þarf að bíða í ca. hálfan mánuð til að sjá hver endanleg niðurstaða verður. Báðar merarnar okkar þær Hrafntinna og Langa-Brúnka frá Höfða voru með fyli og erum við að sjálfsögðu mjög ánægð með það. Nú er Markús kominn í hólfið sem Auður var í og Auður verður í litlu hólfi með þessar 10. merar þangað til hann fer en hann verður í Landeyjunum seinna gangmálið. Hér kemur ein kveðjumynd af þessum flotta höfðingja sem á áræðanlega eftir að marka sín spor í íslenskri hrossarækt.
|
|
|
miđvikudagur, 22 júlí 2009 |
|
Á föstudaginn kl. 11:00 fer fram sónarskoðun á merum sem voru hjá Auði frá Lundum. Þær merar sem ekki sónast jákvæðar verða síðan áfram í ca. 15.-17. daga og verða þá aftur skoðaðar. Fólk er beðið um að mæta og taka sínar merar sem sónast jákvæðar því Markús fer síðan í hólfið sem Auður var í. Það eru komnar 23. hryssur til Markúsar og er ein þeirra hér heima og fær að hitta hann þar, þar sem hún fyljast ekki í hólfi. Mikið er komið af góðum og hátt dæmdum hryssum til hans og er það oftast vegna þess að eigendur eiga gæðinga undan honum og eru að reyna að skapa nýja.
Það er mikill spenningur hjá heimasætunum á bænum því nú er aðeins mánuður í að fjölskyldan fari til Ameríku eða þann 21. ágúst. Flogið verður til New York og þaðan förum við svo til Philadelphiu en þar búa Hákon og María og verðum við á hótel Maríu í til 29. ágúst. Við höfum farið þangað nokkrum sinnum áður og átt þar dýrðlegar stundir. Hér fylgja að gamni nokkrar myndir að heimkynnum þeirra hjóna en þau eru með íslenska hesta í garðinum og eru útreiðaleiðirnar ekki að verri endanum.
 
|
|
|
sunnudagur, 19 júlí 2009 |
|
Þá er Markús mættur og biðum við spennt eftir að sjá höfðingjann mæta en gróusögur höfðu borist okkur til eyrna um kjötmikinn hest og urðu þær að engu þegar við sáum hann 16. vetra, tígulegann, fasmikinn með mikinn prúðleika og hófskegg sem prýðir fáa hesta á Íslandi í dag. Geðslagið er frábært og þar sem við teymdum hann í gegnum hrossahóp greyp hann ekki í taum. Birta var í látum og beið hans og var málið afgreitt á skammri stundu.
Salka frá Kvíabekk kastaði í morgun brúnu hestfolaldi sem er undan Öl okkar og náðum við myndum af honum þar sem hann er ca. 10. mínútna gamall og hjálpuðum við honum á fætur. Við skruppum á fagnað í nýju reiðhöllinni hjá Létti og var það hin besta skemmtun.

|
|
|
föstudagur, 17 júlí 2009 |
|
Á morgun kemur Markús og biðjum við alla þá sem hafa pantað undir hann að vera í sambandi við okkur. Hann mun fara í hólfið hans Auðs þegar hann fer þann 25. júlí en fram að þeim tíma verður hann hér heima. Það er helst að frétta að Njála er köstuð brúnni hryssu og höfum við því fengið 5. hryssur nú í vor og 1. fola og erum afar ánægð með það. Það hefur verið mikið um gestakomur og var hér margt um manninn bæði í dag og í gær. Í gær komu m.a. svíar sem voru að skoða hross og í kvöld komu 2. konur að líta á meri sem önnur á í hólfinu hjá Auði. Það var eins og alltaf þegar við komum í hólfið til hans að hann kemur á fasmiklu tölti til að kanna hver er komin. Það er allt í mikilli ró og spekt og eru trúlega allflestar merarnar komnar með fyl. Við erum búin að kíkja á íslandsmótið sl. 2. daga í stutta stund í senn en ætlum að horfa lengur á morgun, vonandi verður veðrið gott svo allir geti notið þess að horfa á utandyra við þessar frábæru aðstæður sem komnar eru.
 
Grænmeti úr heimagarðinum, svo ótrúlega fallegt, grænt og fullt af vitamínum
|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 81 - 90 af 144 |