Auđur
miđvikudagur, 08 júlí 2009
Dagurinn byrjaði með sól og sumaryl og komu margra skemmtilegra gesta.  Ólöf Birna æskuvinkona mín birtist hér með sína fjölskyldu, Guðrún, Árni og Katrín og síðan Sigga og Siggi.  Einar eldaði hér dýrindis súpu, ég gerði salat úr garðinum og bakaði brauð og sátum við hér í blíðunni og borðuðum úti. Síðan fórum við með Árna og Guðrúnu niður í Grýtu og gengum niður í hólfið hjá þeim Kompási og Auði og koma myndir af þeirri ferð hér.  Grasið er gífurlega mikið í Grýtu og ber myndin af Auði sem er tekin þar þess glöggt vitni.

Heyskap var lokið hér í gær og sáu bræður mínir um það og voru snöggir. Tæki og tól eru orðin svo stór og afkastamikil að það tekur enga stund sem áður tók marga daga, ekki spillir heldur langvarandi þurrkur.

audur.jpg

 

vaengssynir.jpg med_hopinn_sinn.jpg kompas_og_gudbjorg.jpg audur_og_thorhildur.jpg

 

 


 
Vćngur
ţriđjudagur, 07 júlí 2009

Í dag fengum við sendar myndir af Væng Flóttasyni þar sem hann er að keppa á danska meistaramótinu og eins og fyrr segir varð hann danmerkurmeistari í flokki ungmenna í tveimur greinum og í 2. sæti í þeirri þriðju.  Gaman er að því.  Morgundagurinn fer í heyskap og munum við klára hann þá.  Við heyjum heimatúnið, Grýtu og tún á Syðri-Tjörnum.vngur3.jpg vngur1.jpg


 
 
Sumarfrí
mánudagur, 06 júlí 2009

Þá er ég byrjuð í langþráðu sumarfríi og hlakka mikið til.  Mikið var um gesti og gangandi á Brúnum í dag, bæði ættingjar og vinir og við enduðum svo daginn í mat hjá Jóni og Berglindi. 

Við fengum skemmtilegar fréttir í dag af Væng en hann varð danmerkurmeistari í unglingaflokki í tölti og fjórgangi með 14. ára gamla stúlku sem knapa.  Sannarlega góður árangur bæði hjá knapa og hesti.  Við eigum tvær alsystur Vængs, Síðu og Eik en sú fyrri er í hólfi hjá Fjarka frá Breiðholti en Eik er Einar að fara að temja. .

Það er búið að vera brakandi þurrkur í dag og voru öll okkar tún slegin í gær.  Einar sneri í dag og verður þetta bundið á næstu dögum en ekkert liggur á því veðurspá er með eindæmum góð.  Guðbjörg fór með Lilju vinkonu sinni í miðnæturreiðtúr í gærkveldi í dýrðarinnar verði en Einar og Þórhildur fóru fyrr um daginn í sömu blíðunni.

Hér koma myndir af Væng og útreiðarfólkinu.

stelpurnar_og_glugginn_011.jpg stelpurnar_og_glugginn_016.jpg vngur.jpg


 
Björk og Áttan kastađar.
fimmtudagur, 02 júlí 2009

Það leið ekki langur tími frá því við skoðuðum hryssurnar í gær og þar til tvær af þeim voru kastaðar.  Við fórum í Grýtu í morgun og sáum þá að Björk var nýköstuð og Áttan hafði kastað í nótt. Við setjum inn myndir af þeim stöllum og afkvæmunum.  Merin þeirra Hákonar og Maríu ( Áttan) eignaðist hryssu og faðirinn er Sveinn-Hervar.  Hún er brún og er lítil og fíngerð eins og mörg afkvæmi Áttunar eru fyrst til að byrja með.  Björk kastaði brúnni hryssu og faðirinn er Ölur, 4. vetra graðhestur í okkar eigu.  Björk var aldeilis ekki á því að folaldið hennar væri snert en róaðist fljótt en fylgdist grant með.  Folaldið var rólegt og var farið að kljást við þann sem klóraði því.  Við erum búin að skýra folaldið hennar Stjörnu frá Tóftum en hún heitir Jórlaug og kemur líka mynd af henni.  Við eigum góða vinkonu sem ber þetta nafn og er hún því búin að eignast nöfnu.

folald_bjrk_og_folald_ttan_007.jpgfolald_bjrk_og_folald_ttan_015.jpg folald_bjrk_og_folald_ttan_021.jpg

folald_bjrk_og_folald_ttan_020.jpg  folald_bjrk_og_folald_ttan_025.jpgfolald_bjrk_og_folald_ttan_028.jpg jrlaug.jpg


 
Stóđiđ komiđ á fjall
fimmtudagur, 02 júlí 2009

Þá eru öll hross sem ekki á að temja í sumar og haust komin á fjall og gekk sú ferð með afbrigðum vel.  Við fórum með þau öll yfir á Hrafnagil í gærkveldi og hjálpuðu Bjössi og Ester okkur með það.  Í dag ráku svo stelpurnar stóðið með pabba sínum og Maríu vinkonu þeirra upp í fjall. Hrossin fóru þangað í einum rykk þrátt fyrir að vera dösuð í hitanum.  Við Einar fengum okkur göngu í góða veðrinu í morgunn í Grýtu til að kíkja á óköstuðu merarnar sem eru í góðu yfirlæti í hólfi við skóginn. Mikið er komið undir Björk og fer að styttast í að hún kasti og einnig er mjög stutt í Áttuna og Njálu.  Veðrið var dásamlegt  23. stiga hiti og sól og sveitin skartaði sínu fegursta.  Við gengum líka niður í hólfið hjá Kompási og þar er allt í sómanum, merarnar dreifðar um hólfið og hann kom og fengum við að klappa honum og kjassa.  Á morgunn ætlum við að rölta aftur í Grýtu og ganga þá hólfið hjá honum Auð og skoða.  Hér koma myndir frá göngutúrnum í morgunn.

essi_dama_er_undan_randver.jpg randversdttir_og_mirin_fr_tftum.jpg ornar_reyttar.jpg

njla_og_ttan.jpgbjrk_me_fyli_undan_l.jpg komps_.jpg


 
Kompás kominn í hólf
föstudagur, 26 júní 2009

Þá er Kompás kominn í hólf á Grýtu og allt í lukkunar velstandi.  Fyrsta sólarhringinn hélt hann merunum þétt í hóp en eftir það hefur allt verið rólegt og þær dreifðar um hólfið.  Það var bætt inn í hópinn í gær einni meri og tók hann henni mjög vel.  Það eru mikil rólegheit yfir Auði í sínu hólfi og er pláss fyrir eina meri þar sem ein hefur ekki skilað sér. 

Við höfum staðið í ströngu við gróðursetningu í skjólbelti á Grýtu og lukum við að setja niður 1200. plöntur í dag.  Það verður gaman að fylgjast með þessu vaxa og dafna og sjá útkomuna eftir nokkur ár.

Stelpurnar hafa verið duglegar að ríða út og í gær fóru þær alla bakkana niður að Höskuldsstöðum og hitaveituveginn heim.  Þær lentu í mikilli rigningu og var þetta mikið ævintýri.  María vinkona þeirra var með þeim.

Þá er helgin framundan og gerum við þá eitthvað skemmtilegt.  Hér koma myndir af hænunum á Brúnum sem Gyða tók í vor.

tvaer_eins.jpg copy_of_hvad_viltu.jpghopp.jpg


 

 
Góđir dagar
laugardagur, 20 júní 2009

Síðastliðin vika hefur verið skemmtileg og viðburðarrík, við höfðum hér góða gesti og mikið var stússast í hrossum.  Einar, Hákon og Ívar klipptu hófa og flokkuðu hrossin svo allt væri klárt áður en Auður frá Lundum kæmi í hólfið á Grýtu. Það var gaman að sjá þegar honum var sleppt og hann þaut af stað til funda við meraskarann sem komin var. Það tók smá stund að fara yfir hópinn og síðan var allt dottið í dúnalogn og hann farinn að sinna skildustörfum. Guðbjörg og Einar fóru í  reiðtúr í dag á bökkunum og fóru niður að Teigi, veðrið var yndislegt og þau tóku með sér nesti og nutu útiverunnar. Guðbjörg fór á bleiku merinni Bjöllu og var alsæl með hana, hún er þæg og auðvelt að láta hana tölta. Þórhildur var að veiða austur í sveitum með Kötlu vinkonu sinni og hennar fólki og veiddi 5. urriða. Þær eru því sælar og útiteknar eftir daginn. Ég fór í garðvinnu eftir vinnu á gjörgæslunni í dag og gleymdi mér þar við arfahreinsun og gróðursetningu. Nú er dagur að kveldi komin og ég set hér í lokin myndir af Guðbjörgu á Birtu og af skjólbeltagerð í Grýtu sem við höfum verið að vinnað í að undanförnu.

 

 bubba_og_birta.jpg bubba_og_birta2.jpggrodursetning_a_grytu.jpg


 
Auđur í hólf 19.06.
sunnudagur, 14 júní 2009

Við erum vonandi búin að láta alla hryssueigendur vita að nokkura daga seinkun verður á komu Auðs frá Lundum en hann kemur þann 19.06 í stað 15.06 og mun verða hér lengur sem því nemur. Allar girðingar eru til og hefur Einar verið stanslaust að sl. daga svo allt sé klárt. Kompás mun líka fara í hólf á allra næstu dögum og munum við láta hlutaðeigndi vita þegar að því kemur.  Stjarna frá Tóftum er köstuð fallegri og fíngerðri rauðri hryssu en faðir hennar er Randver frá Sólheimum. Það er mikill leikur í henni og stoppar hún varla en Einar hefur verið að fylgjast mikið með folöldunum á meðan hann er í girðingarvinnunni. Þetta er mikið hryssuvor og þekkjum við marga sem hafa nær eingöngu fengið hryssur en af 4. folöldum eru 3. hryssur og 1. foli sem hafa fæðst á Brúnum í vor.  Í dag fórum við með Síðu Flóttadóttur undir Fjarka frá Breiðholti en hann verður í Bringu í sumar.  Fjarki er  sammæðra gæðingshryssunni Dögg frá Breiðholti og faðir hans er Þristur frá Feti.  Hann er 5. vetra gamall og 1. verðlauna stóðhestur sem okkur lýst mjög vel á. Hér fylgja myndir af Bjössa í Hólakoti á Randveri og Síðu sem tekin var sl. sumar.

 bjossi_og_randver.jpgsida_flottadottir.jpg


 
Kynbótasýningum lokiđ
miđvikudagur, 10 júní 2009

Þá er kynbótasýningum lokið og náði Birta 1. verðlaununum með 8.12 í heildareinkun eða 8.19 í byggingu og 8.07 í hæfileikum og erum við mjög ánægð með það. Birgir Árnason hefur haft hana í rúmlega mánuð og sýndi hana í dag og gerði það mjög vel.  Einnig var Ölur 4. vetra stóðhesturinn okkar sýndur í byggingu og fékk 7.94 og ætti að geta hækkað sig næsta ár.  Nú fer Birta í folaldseignir og ætla ég að halda henni undir Markús frá Langholtsparti. Ég eignaðist Sokku móður Birtu fyrir margt löngu en ég dró Einar í kalsa-rigningu upp í fjall á Laugalandi til að skoða hana nýlega fædda.  Þar hljóp móðir hennar um en folaldið sást hvergi en þá hafði hún farið oní gamalt og gróið ræsi og sat þar föst.  Sokku misstum við síðan úr hrossasótt rétt ókastaða með fyli undan Glampa.  Birta er því eina afkvæmið sem við eigum undan Sokku. 

Í yfirlitssýningu 11.06, hækkaði Birta sig í skeiði úr 8.0 í 8.5 og fékk því 8.16 í aðaleinkunn og erum við náttúrlega enn ánægðari með það.

 

Ég set inn myndir af Birtu og Birgi á Melgerðismelum sl. helgi.

birta_og_biggi_006.jpg


 
Meira...
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 91 - 100 af 144