|
Spaði er glæsilegur, einstaklega framfallegur og litfagur. Hann er undan Fjarka frá Breiðholti og Síðu frá Brúnum og fæddist 27.mai 2010.
Þar sem við fengum svo mörg hestfolöld þetta árið þá komumst við ekki hjá því að fækka þeim eitthvað og því er Spaði til sölu á 200 þúsund kr.
Hér fylgja einnig myndir af móður Spaða, Síðu frá Brúnum og föður hans Fjarka frá Breiðholti sem er undan gæðingamóðurinni Hrund frá Torfunesi og Þristi frá feti.
  
|
|
|
Bjarkar er brúnstjörnóttur undan Svörru frá Fjalli og Illingi frá Tóftum. Hann er fæddur 2006 og er með allan gang. Hann var einstaklega prúður, strax tveggja vetra gamall.
Seldur
|
|
|
Svarri er fæddur 2004 og er undan Flótta og Fáfnisdótturinni Svörru frá Fjalli í Skagafirði. Hann er einstaklega prúður með góðar hreyfingar og hefur verið í tamningu í haust þ.e. 2008 hjá Auðbirni í Hólakoti. Tamningin hefur gengið mjög vel og er hann gangmikill og viljugur. Hann var geltur vorið 2009. Seldur
|
|
|
Vindur er fæddur 2004 og er undan Báru frá Árgerði, sem var undan Snældu gömlu frá Árgerði og Hirti frá Tjörn. Snælda var efst í flokki 6. vetra hryssna á LM á Þingvöllum 1978. Vindur er undann Degi frá Höfða en hann er af Kolkuóskyni. Hann er stór og fallegur foli, einstaklega geðgóður og rúllar strax á gangi eftir tveggja mánaða tamningu. Vindur er ásetugóður og ljúfur hestur sem næst auðveldlega í haga og teymist vel. Upplagður fyrir óvana jafnt sem lengra komna.
|
|
|