|
fimmtudagur, 02 september 2010 |
|
Þá er tölvan komin í lag og hægt að setja inn á síðuna á ný, þökk sé snillingnum honum Ívari Erni.
Það er helst að frétta að við skelltum okkur á suðurlandið sl. helgi á ættarmót og í leiðinni fór Einar í Auðsholtshjáleigu og falaðist eftir graðhesti til að hafa hér næsta sumar. Stefnt er að því að Gári verði hér og einnig Roði frá Garði.
Hér er heyskapur í fullum gangi enda einmuna veðrurblíða og nægur heyfengur mun verða fyrir veturinn. Einnig höfum við mæðgur farið í berjamó og notið þess að vera úti í náttúrunni og reyndum meira að segja að ná í aðalbláber í Aðaldalinn en uppskárum ekki erindi sem erfiði.
Um helgina verður gengið hér og réttað og mætir hingað vaskur hópur fólks til að hjálpa okkur en bóndinn mun stjórna þessu á hækjunum.Set hér inn gamlar myndir af bóndanum og gróðrinum.
  
|
|
|
miđvikudagur, 25 ágúst 2010 |
|
Birta kom heim í dag úr Svarfaðardalnum fylfull eftir Vilmund frá Feti. Hún er vel á sig komin og sá stutti sem fylgir henni hefur einnig braggast þessar vikur í dalnum fagra. Þræta frá Syðri-Hofdölum er einnig komin heim fylfull eftir Hrímni frá Ósi svo það er fullt hús hér á bæ í fyljunarhlutfalli. Stelpurnar eru loksins komnar heim en þær áttu yndislega viku í Reykjavík með Kötlu vinkonu sinni og var mikið verslað og margt brasað. Þær eiga afmæli í dag þessar elskur og kom hér margt fólk í kvöld.
 
|
|
|
laugardagur, 21 ágúst 2010 |
|
Ölur okkar var sýndur nú á fimmtudaginn og hlaut 7.98 fyrir byggingu en hæfileikarnir létu á sér standa og endaði hann í um 7, 43 í heildareinkunn. Við höldum og höfum séð að hann á talsvert inni en það lét á sér standa. Við ætlum okkur að gelda kauða en höfum fulla trú á honum sem góðum gæðingi síðar meir.
Björk fór til Kvists í dag og Stássa er farin til Glyms og vonandi fá þær báðar þá áliðið sé.
Ég og mágkonur mínar fórum til berja í dag og tíndum gríðarlegt magn af berjum og er byrjað að sulta og frysta hér á bæ. Stelpurnar eru enn í Reykjavík en þangað fóru þær með Kötlu vinkonu sinni sl. miðvikudag og eru núna á menningarnótt skvísurnar með móðursystur Kötlu.
Set inn mynd af vinkonunum og Bríeti blómarós en myndin var tekin í brúðkaupi foreldra hennar nú fyrir stuttu.

|
|
|
mánudagur, 16 ágúst 2010 |
|
Þá eru loksins allar merarnar hér á Brúnum kastaðar en Björk kastaði í dag brúnskjóttu merfolaldi og er faðirinn Markús frá Langholtsparti. Stássa systir hennar kastaði sl. föstudag og átti einnig brúnskjótt merfolald og er Markús einnig faðirinn af því svo eigendurnir eru að vonum sælir með það. Þær systur eru hér fyrir neðan hús og geta leitað skjóls í rigningunni sem er búin að skella á okkur í dag. Set hér inn myndir af Stássudóttur en hin hefur ekki enn verið fest á filmu.
 
|
|
|
föstudagur, 13 ágúst 2010 |
|
Í gær var sónarskoðað úr hólfinu hjá Glym og voru 10 merar með fyli og eru þær flest allar farnar til síns heima. Lísa okkar var aftur sónuð geld og er það miður en ekki er öll von úti því hún verður áfram í hólfinu hjá Glym. Hingað mætti fjölmennur hópur fólks sem hjálpaði okkur og reddast þetta allt þó Einar geti lítið sem ekkert gert.
Við tókum gömlu Stássu hingað heim í vikunni til að getað fylgst betur með henni og þessa stundina er hún alveg komin að köstun, gengur hring eftir hring í hólfinu með taglið uppi og með stóra dropa á spenunum og verður hún trúlega köstuð fyrir miðnætti.
Mikið er ég fegin að allt þetta hryssustand er að verða búið og flest allar þessar hátt dæmdu og verðmætu merar séu komnar heilu og höldnu til síns heima. Set hér inn myndir af Stássu gömlu, Glym og Öl sem á að sýna nú í ágúst en hann er búin að vera hér heima í nokkrum meru.
 
|
|
|
ţriđjudagur, 10 ágúst 2010 |
|
Í dag var sónarskoðað frá Kvisti frá Skagaströnd og voru 24 hryssur með fyli af 33. Okkar merar ásamt Áttunni sem Hákon og María eiga voru fylfullar þannig að útkoman hér á bæ er mjög góð. Einnig reyndist Langa- Brúnka með fyli undan Gígjari en hún kom heim í gær úr hólfi í Aðaldalnum.
Þær merar sem ekki voru enn fengnar hjá Kvisti fóru aftur í hólfið til hans ásamt merum sem biðu eftir plássi og verða þar fram í september.
Set hér inn fleiri myndir úr brúðkaupinu og þar á meðal af Evu minni sem saumaði brúðarkjólinn á systur sína og geri aðrir betur.
  
|
|
|
mánudagur, 09 ágúst 2010 |
|
Sl. laugardag giftu þau Villa og Börkur sig en Villa er fyrsta barnabarn mömmu sem gengur í það heilaga. Mikið var um dýrðir og veðrið lék við veilsugesti. Veislan var dásamleg og fóru félagar hans Barkar á kostum ásamt fleirum en síðan fóru gestir á Stafn til Þóru systur og Íbba og þar stóð gleðin til 05:00 um morguninn með varðeldi, sögn og stuði.
Við erum búin að hafa góða gesti sl. 2. daga eða þau Guðrúnu og Árna vini okkar úr Reykjavík. Árni járnaði Ragnar Elías fyrir Guðbjörgu en hún hefur mikið kvartað yfir því að hafa ekki getað riðið út í sumar. Við Guðrún fórum í dag í Grýtu og yfirfórum skjólbeltin og bættum í þar sem þurfti. Veðrið var dásamlegt og fátt skemmtilegra en að stússast í garðyrkju.
Á morgun verður sónarskoðað undan Kvisti og eiga hryssueigendur von á símatali eftir hádegið og þá beðnir um að ná í hryssurnar ef þær eru með fyli.
Já ekki má gleyma því að við áttum fegursta hanann á ræktunarsýningu eigenda íslenskra landnámshænsna sem haldin var í tengslum við handverkshátíð nú um helgina. Þetta er í annað sinn sem okkur hlotnast þessi heiður en Jónsi í svörtum fötum sem er pabbi Blandons (verðlaunahanans 2010) vann árið 2006.
    
|
|
|
fimmtudagur, 05 ágúst 2010 |
|
Þá er það komið í ljós að Hrafntinna er fylfull eftir Hóf frá Varmalæk, Þræta eftir Hrímni frá Ósi og Otra frá Árbakka eftir Dal frá Hólakoti og erum við afskaplega ánægð með það. Við tókum daginn snemma og fórum með Auðnu í sónarskoðun og sáust tvö stór egg þannig að hún ætti að fara í læti í næstu viku. Við fórum síðan með hana og aðra gullfallega vindskjótta meri í hólfið til Glyms og tók hann þeim fagnandi.
Set hér inn myndir af fögru fjalli í Borgarfirði, Njálu með Markúsarson, Jóni að segja okkur eitthvað fróðlegt og bláklukku sem vex, að ég held, aðeins á austurlandi.
  
|
|
|
mánudagur, 02 ágúst 2010 |
|
Við lögðum land undir fót og bíl um helgina og fórum í Borgarfjörð-Eystri. Þangað var ferðinni heitið m.a. til að nálgast hana Auðnu frá Sólbakka sem vinur okkar Jón á Sólbakka lánar okkur og mun hún fara undir Glym ef reynist í lagi með hana. Auðna er afskaplega rúm hryssa á brokki en var ekki sýnd. Sumir segja að hún hafi farið það hratt á brokkinu að það jafnaðis á við flugaskeið. Slaufa gamla sem er formóðir margra okkar hrossa var svipuð og eitt sinn var Einar að kvart yfir þessu við Jón í Vatnsleysu um að erfitt væri að gangsetja hana á töltið og gaf hann lítið fyrir það vegna þess hve rúm hún væri.
Borðarfjörður-Eystri er dásamleg sveit og gleymum við því seint þegar við gengum yfir í Loðmundarfjörð og svo þaðan yfir í Húsavík fyrir 6 árum.Við höfum ætlað okkur að ganga Stóru-Urð tvisvar en í fyrra skiptið tognaði Þórhildur og gekk við hækjur og svo núna gengur Einar við hækjur þannig að við ákváðum að stíla ekki á Stóru-Urð næsta sumar heldur á Brúnavík og jafnvel Breiðuvík eða fara ríðandi.
Þær Einarstaðasystur Kistín og Sigga mættu hér um hádegið og hjálpuðu okkur að girða restina af Kvistshólfinu en við þorum ekki öðru en að girða alla skurðbarma áður en hólfið er smám saman stækkað þar sem mjög dýrmætar hryssur og folöld eru þarna hjá höfðingjanum sjálfum.
 
|
|
|
föstudagur, 30 júlí 2010 |
|
Allt gengur vel í graðhestahólfunum og lítur Einar á þau kvölds og morgna. Við höfum grun um að allflestar merarnar hjá Kvisti séu komnar með fyl nema þær sem eru fyrir stuttu komnar. Mikil ró er yfir hólfinu og nóg að bíta og brenna.
Brúna-brekkan var girt á nýjan leik í gær að mestum hluta og var það húsfrúin á bænum sem tók það að sér með leiðbeiningum, þetta eru engin geymvísindi en skiptir samt máli hvernig það er gert eins og með öll verk. Það var vinnumaðurinn á bænum sem reif alla gömlu girðinguna sem var gaddavírsgirðing og var mesta vinnan fólgin í því verki. Það er merkilegt hvað alltaf er nóg að gera í sveitinni og þarf engin að láta sér leiðast.
Það fer að skýrast í næstu viku hvort Tinna sé fengin við Hófi og Langa-Brúnka við Gígjari. Birta er t.t.l nýkomin til Vilmundar þannig að ekkert er að frétta þaðan á næstunni en það ætti að fara að skýrast með Þrætu sem er hjá Hrímni frá Ósi.
Set hér inn myndir af þeim stóðhestum sem við höldum undir þetta sumarið.
    
|
|
|
fimmtudagur, 22 júlí 2010 |
|
Gríðarlega góð útkoma var hjá Glym frá Innri - Skeljabrekku en alls voru 19 merar fengnar svo það er rúmt á honum þessa dagana þó svo að nokkrar hafi bæst við.
Við fórum með Birtu til Vilmundar og vonandi verður hann almennilegur við hana en það er ekki hægt að bæta við í hólfið hjá honum þar sem hann hefur sýnt einhver leiðinlegheit þegar það hefur verið gert. Við bætum í hægri/vinstri hjá þeim félögum sem hér eru og taka þeir öllum merum fagnandi.
Þá er sumarfríið hjá mér á enda og við tekur vinna á gjörgæslunni alla helgina og strax eftir helgi í fræðslustörfunum að skipuleggja veturinn. Einar verður áfram hér heima og erum við búin að fá mann til aðstoðar þar sem hann getur ekki gert það sem gera þarf.
Björk, Stássa og Njála er enn ókastaðar og er þetta nú meiri stíflan í þeim. Veðrið er dásamlegt og fékk ég góða heimsókn hér í morgun þegar Þóra systir kom með barnabörnin Ívar og Bríet og voru hænunar settar út og þeim gefið brauð og vatn og var þetta mikil upplifun fyrir borgarbörnin.
  
|
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 1 - 15 af 145 |