Þá hefur verið frá þvi gengið að stóðhesturinn Glymur frá Innri-Skeljabrekku verði hér næsta sumar. Glymur fékk í hæfileikaeinkunn 4. vetra, 8.67 og er það hæsti hæfileikadómur sem nokkur stóðhestur hefur fengið 4. vetra gamall. Hann mun koma hingað eftir landsmót og verða hér langt tímabil eða frá júlí byrjun og út sumarið. Fyrrihluta sumars verður hann í Landeyjunum. Höfða-Gustur stendur að Glym í bæði föðir- og móðurætt og er hann einstakur í röðum stóðhesta sökum litar og hæfileika. Þegar hafa okkur borist pantanir undir hestinn. Nánari upplýsingar um hann eru á heimasíðunni glymur.blog.is. Hér koma myndir af þessum frábæra gæðingi.