| Kvistur mættur |
|
|
|
Þá er Kvistur frá Skagaströnd mættur til sinna mera í hólfið á Grýtu. Þar eru margar frægar og hátt dæmdar merar sem verulega gaman er að berja augum s.s. Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki svo einhver sé nefnd. Hann var glæsilegur sá brúni þegar honum var sleppt, lofthár og tígulegur með sitt mikla fax. Nokkrar merar eiga eftir að bætast við sem eru enn ókastaðar og svo verður bætt inn í hólfið þegar búið er að sónarskoða frá honum. Það er þegar búið að sjást til hans sinna nokkrum merum svo þetta lítur allt mjög vel út. Afmælið tókst mjög vel og fóru allir sælir og glaðir héðan í dásamlegu veðri. Vinur okkar Ögmundur Knútsson sá um matinn með dyggri aðstoð vaskra kvenna og var margrétta matseðill svo allir fengu eitthvað við sitt hæfi. Við þökkum öllu þessu frábæra fólki sem kom og hjálpaði okkur að gera daginn eftirminnilegann bæði með að koma og skemmta sér með okkur og hjálpa okkur við veitingar og skemmtun. Set hér inn myndir úr afmælinu og af afmælisbarninu með yfir grillurunum þeim Hákoni og Ögmundi.
|


