| Júlí 2010 |
|
|
|
Þar kom rigningin og er næstum hægt að sjá hvað móðir jörð er ánægð og sýgur hana til sín. Guðrún mágkona mín fór í Grýtu í gær með stelpunum og tók nokkrar myndir en hún er með mjög góða vél og set ég inn myndir frá þeirri ferð. Allt gengur vel í graðhestahólfunum og enn að bætast við merar hjá Kvisti. Áttan fór til hans í dag og ein önnur meri sem er nýlega köstuð, við litum til þeirra aftur í kvöld og þá var mikil ró yfir öllu.
|


