| Júlí |
|
|
|
Allt gengur vel í stóðhestahólfunum og sjást þeir félagar vera að sinna sínum merum í tíma og ótíma. Húsbóndinn er ekki í fullkomnu standi þessa dagana eftir byltu sem hann hlaut fyrir rúmri viku síðan en staulast nú um á hækjum. Enn bíðum við eftir því að Birta, Björk og Ísgerður kasti en við erum með þær í hólfi á Grýtu og eru þær þar í góðu yfirlæti, Birta fer síðan til Vilmundar og Björk til Kvists og Ísgerði skilum við síðan suður. Búið er að eitra njóla á Grýtu á þeim svæðum þar ekki eru hross á og kerfilinn verður eitraður á næstu dögum. Eik er búin að vera veik og hefur þurft sýklalyf og aðhlynninu en er öll að hressast. Set inn til viðbótar nokkrar myndir úr afmælinu :-)
|


