- Frú Ísgerður kastaði í nótt og eignaðist brúnt merfolald en faðirinn er Kompás frá Skagaströnd. Í gær sáum við að broddur var komin á spenana á henni og var því fylgst með henni vökulum augum og fljótt eftir miðnætti sást í hófa og stuttu síðar var sú stutta fædd. Hún er mjög háfætt og sperrt og vonandi koma Orra og Sunnugenin til sögunnar seinna meir.
- Stóðhesturinn okkar hann Ölur er kominn hér á heimatúnið með einni meri sem Einar fékk gefins nú á dögunum en hún er undan Safír frá Viðvík. Öl á vonandi að sýna nú í sumar en flensan er búin að hrjá hann þó hann hafi aldrei orðið mikið veikur en hóstað og verið með nefrennsli.
  
-
|