Birta að verða léttari Prenta Senda

Í kvöld þegar við fórum í okkar hefðbundnu ferð í Grýtu til að líta á graðhestahólfin fyrir nóttina og þær óköstuðu í leiðinni þá sáum við hvar broddur er kominn á spenana á djásninu á bænum henni Birtu. Hún var líka heldur geðvond og beit merarnar sem nálguðust hana svo við verðum á vaktinni í nótt.  Það er að verða heldur þreytandi þessi veðrátta og lét ég mig hafa það að vinna í garðinum í dag með hjálp sláttumannsins hans Valdemars sem jafnframt kom sláttuorfinu í gang en það hafði ekki gengið um hríð.

Það var mikill sorgardagur í  gær þegar Flótti vinur okkar frá Borgarhóli var feldur 22 vetra en hann var ekki frjór lengur og einnig hrjáðu hann gömul meiðsli á afturfæti. Áður en hann var felldur þá voru klippir tveir brúskar úr faxinu á honum til  minningar.  Allir fjölskyldumeðlimir felldu  tár og hann fékk hvildarstað við skjólbeltið á túninu fyrir neðan húsið. Flótti var sýndur á landsmótinu í Reykjavík árið 2000 þá 12 vetra gamall og fékk þá 7.91 fyrir byggingu og 8.62 fyrir hæfileika og aðaleinkun 8.33. Flótti var einstakur töltari og yfirferðin var slík að hann var mældur á 51. km. hraða á tölti og hafði Einar einstklega gaman af að ríða honum og áttu þeir margar ógleymanlegar stundir. Við höfum notað Flótta mikið og hefur hann reynst okkur vel og eigum við mörg tryppi sem við bindum miklar vonir við.

flotti.jpgbubba_og_birta.jpgbubba_og_birta2.jpgflotti_maeldist_a_55_km_hrada_a_tolti.jpg