| Júlí hálfnađur |
|
|
|
Þar sem Einar er ekki heill heilsu þá er ekki mikið um ferðalög og má segja að öll áform sumarsins hafi ekki náð fram að ganga fyrir utan það eina að halda upp á afmælið hans :-) Við höfuð það bara náðugt hér heima við og ég vinn í garðinum og endurnýjast á sál og líkama við það, setti niður tré í dag og tók kálgarðinn í nefið ásamt því endalausa verkefni að reyta arfa hirst og her. Stelpurnar fóru með föður sínum í girðingavinnu í Grýtu en hann sat í traktornum og þær gerðu það sem þurfti, ýttu niður staurum, settu tappa í og síðan var vírinn settur uppá og hann strengdur. Vinur okkar Reynir Hjartarson hringdi hér á meðan á þessu stóð og fékk Einar þessa vísu senda í kjölfarið: Einar hefur ennþá sinnu, ekki kúrir heim við hlað. Gott er að stunda girðingarvinnu, ef gliðnun hefur átt sér stað.
Bjartur litli hennar Birtu og Markúsar er orðinn góður í fótunum og hleypur um allt glaður og áhyggjulaus. Næsta þriðjudag förum við svo með þau mæðgin í Svarfaðardalinn þar sem þau fara í hólf til Vilmundar frá Feti. Björk er enn óköstuð en hún fer svo til Kvists og einnig Stássa gamla og Njála þegar þær kasta en þær merar eigum við ekki sjálf. Næstkomandi þriðjudag verður sónarskoðað undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og munu þá eigendur þeirra mera sem sónast jákvæðar verða látnir vita. Set að lokum inn myndir af þeim stutta sem ég er ótrúlega ánægð með:-) og af merunum sem hafa það ekki slæmt í hólfinu hjá Kvisti.
|

