Góđ útkoma hjá Glym Prenta Senda

Gríðarlega góð útkoma var hjá Glym frá Innri - Skeljabrekku en alls voru 19 merar fengnar svo það er rúmt á honum þessa dagana þó svo að nokkrar hafi bæst við.

Við fórum með Birtu til Vilmundar og vonandi verður hann almennilegur við hana en það er ekki hægt að bæta við í hólfið hjá honum þar sem hann hefur sýnt einhver leiðinlegheit þegar það hefur verið gert. Við bætum í hægri/vinstri hjá þeim félögum sem hér eru og taka þeir öllum merum fagnandi.

Þá er sumarfríið hjá mér á enda og við tekur vinna á gjörgæslunni alla helgina og strax eftir helgi í fræðslustörfunum að skipuleggja veturinn. Einar verður áfram hér heima og erum við búin að fá mann til aðstoðar þar sem hann getur ekki gert það sem gera þarf. 

Björk, Stássa og Njála er enn ókastaðar og er þetta nú meiri stíflan í þeim. Veðrið er dásamlegt og fékk ég góða heimsókn hér í morgun þegar Þóra systir kom með barnabörnin Ívar og Bríet og voru hænunar settar út og þeim gefið brauð og vatn og var þetta mikil upplifun fyrir borgarbörnin.

gullregn_jl_20101.jpgsumarstemming.jpgglymur_og_merar_026.jpgglymur_og_merar_013.jpg