Hrossarækt á Brúnum Prenta Senda

Árið 2001 keyptum við Hugrún Brúnir og þá hófst fyrst fyrir alvöru hrossarækt hjá okkur. Áður hafði ég einungis haldið tveimur hryssum, þeim Svölu frá Kolkuósi og Slaufu frá Stokkseyri. Slaufa var blönduð af hornfiskum- og Hindisvískum stofnum, hún var öskuviljug klárhryssa með mikinn fótaburð. Svala var hágeng og fasmikil klárhryssa með tölti, Stígandadóttir frá Kolkuósi. Slaufa er áberandi í okkar ræktun og er hún ásamt hryssum frá Höfða í Þverárhlíð, þungamiðjan í okkar ræktun. Stóðhestar hafa verið fjölmargir en aðalstóðhestur okkar er og hefur verið Flótti frá Borgarhóli, sá mikli töltmeistari Jóns Sigurðssonar á Sólbakka í Borgarfirði eystri. Flótti er austanvatna hestur sem á ættir sínar að rekja til Svaðastaða. Fleiri stóðhestar hafa verið notaðir og þeir helstu eru: Adam frá Meðalfelli, Töfri frá Selfossi, Hrymur frá Hofi, Kormákur frá Flugumýri, Forseti frá Vorsabæ, Dósent frá Brún, Vængur frá Brúnum, Illingur frá Tóftum, Rökkvi frá Hárlaugsstöðum og Þokki frá Kýrholti.

Sumarið 2009 vorum við með Auð frá Lundum og Markús frá Langholtsparti og Kompás frá Skagaströnd var einnig sumarið 2009 í nokkrum merum. 

Sumarið 2010 verða hér Glymur frá Ynnri-Skeljabrekku og Kvistur frá Skagaströnd. Þeir koma strax eftir landsmót og verða hér langt tímabi.

 

Ræktunarmarkmið.

Markmiðið með hrossarækt á Brúnum er að rækta fasmikinn og fagran gæðing sem býr yfir fjölhæfum gangi, miklu rými og góðu geðslagi.